Quest húðskammar Breta og Hollendinga í Icesavemálinu 12. janúar 2010 09:58
Richard Quest hinn þekkti viðskiptafréttamaður á CNN húðskammar Breta og Hollendinga fyrir framkomu sína í garð Íslendinga í Icesave málinu. Þetta kemur fram á bloggi Quest, hinu fyrsta frá honum á nýju ári en kappinn hefur að undanförnu dvalið í fríi í Egyptalandi. Quest segir að Icesave málið hafi verið honum hugleikið í lok frídaga sinna og sérstaklega sá kvikindaskapur sem Bretar og Hollendingar hafa sýnt Íslandi með því að krefjast greiðslna frá landi sem er gjaldþrota. „Upphæðin sem krafist er (minna en 5 milljarðar punda) telst smælki þegar haft er í huga að Bretar einir muni taka meir en 500 milljarða punda að láni á næstu tveimur árum," segir Quest. Þá segir Quest það vera hreinan fantaskap að hóta Íslandi útilokun frá ESB ef Íslendingar skrifi ekki undir og borgi það sem sett er upp. „Það er auðvelt að níðast á smærri fátækari þjóð sem er komin að fótum fram," Quest sem telur þessa framkomu Breta og Hollendinga vera fyrir utan allt velsæmi. Quest er í engum vafa um að ef íslenska þjóðin hafnar Icesave samkomulaginu í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu muni viðbrögð stjórnvalda Breta og Hollendinga verða á stöðluðum ESB nótum..."ekki hafa áhyggjur, gerið bara eins og við þegar við töpum atkvæðagreiðslum...haldið áfram að spyrja spurningarinnar þar til þið fáið rétta svarið."
Mest lesið Gleymdi að skrá sig úr stæðinu og því rukkuð um 48 þúsund Neytendur Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Viðskipti innlent Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Viðskipti innlent Hótar Kanadamönnum hærri tollgjöldum Viðskipti erlent Íbúðum í byggingu fækkar Viðskipti innlent Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Viðskipti innlent Um forvitna yfirmanninn Atvinnulíf Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Viðskipti innlent Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Viðskipti innlent Kaffi heldur áfram að hækka í verði Neytendur Fleiri fréttir Íbúðum í byggingu fækkar Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Atli Óskar ráðinn rekstrarstjóri framleiðslu Engin U-beygja hjá Play Veitingamenn verulega óánægðir með eftirlitið Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Spá umtalsverðum samdrætti í byggingu nýrra íbúða Falsaði fleiri bréf Veltir því upp hvort eigendum hafi verið refsað fyrir að tjá sig Hætta við yfirtökuna Harpa og Linda ráðnar forstöðumenn Stærsti samruninn í áraraðir á borð Samkeppniseftirlitsins Sylvía Kristín ráðin forstjóri Nova Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Farþegum til landsins fjölgaði um tuttugu prósent Kvika hafi grætt töluvert á því að hafna upphaflegum tilboðum „Sem betur fer eru aðrir fiskar í sjónum“ Arion og Kvika í samrunaviðræður Eyþór hættur sem framkvæmdastjóri Hopp Svona munu stækkuð Skógarböð og hótel líta út Skrautleg saga laganna hans Bubba Sætta sig ekki við höfnun Kviku Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Lofar bongóblíðu við langþráð langborð Minnstu sparisjóðirnir sameinast Sjá meira