Greining: Litlar líkur á að gjaldeyrishöft hverfi næstu árin 12. janúar 2010 14:04
Greining Arion banka telur að litlar líkur séu á því að gjaldeyrishöftunum verði aflétt á næstu árum. Þetta kemur fram í Markaðspunktun greiningarinnar þar sem fjallað er um útgáfu ríkisbréfa.Greiningin segir að útgáfa ríkistryggðra skuldabréfa tók gríðarlegan kipp í kjölfar efnahagshrunsins og óx stærð þessara skuldabréfaflokka um ríflega 300 milljarða kr. á árunum 2008-2009. Lang stærsti hlutinn af þessari viðbótar útgáfu var í formi óverðtryggðra ríkisbréfa.Nettó aukning í útgáfu ríkistryggðra bréfa og skuldabréfa sveitarfélaga (LSS) mun hinsvegar einungis nema um 35 milljörðum kr. á árinu 2010. Þetta er í raun álíka mikið og árleg útgáfa var að jafnaði á árunum 2000-2007. (Með ríkistryggðum skuldabréfum er átt við óverðtryggð og verðtryggð ríkisbréf, ríkisvíxla og verðtryggð skuldabréf Íbúðalánasjóðs.)Á sama tíma er töluverð eftirspurn eftir skuldabréfum enda eru aðrir eignaflokkar en skuldabréf og innlán að skornum skammti vegna gjaldeyrishaftanna. Framboð skuldabréfa verður enn fremur lítið í samanburði við fjárfestingargetu lífeyrissjóðanna sem greiningin áætlar að nemi um 100 milljörðum kr. á ári.Greining dregur síðan fram það helsta sem gæti raskað þeirri mynd sem hér er dregin upp af takmörkuðu framboði.„Ef gjaldeyrishöftum yrði aflétt myndi framboð skuldabréfa á eftirmarkaði aukast ef erlendir aðilar losuðu um stöður og erlendir fjárfestingarkostir myndu opnast fyrir íslendingum á ný. Við teljum hinsvegar afar litlar líkur að höftunum verði aflétt á allra næstu árum," segir í Morgunkorninu.„Það myndi einnig raska þessari mynd ef erlend lánafyrirgreiðsla (þ.m.t. gjaldeyrislán frá vinaþjóðum og AGS) yrði lokuð Íslandi um langt skeið því þá þyrftu bæði ríkið og íslensk fyrirtæki að reiða sig á innlenda fjármögnun í meiri mæli.Í þriðja lagi ber að hafa í huga að um 100 milljarðar kr. af ríkisbréfum (um 70 milljarða kr. íbúðarbréf og 30 milljarða kr. ríkisbréf) sitja fastir í Seðlabanka Lúxemborgar.Þessi bréf gætu fyrr eða síðar endað aftur á markaði og þannig í raun komið fram sem aukið framboð skuldabréfa. Unnið að lausn málsins þar sem stefnt er að því að losa um bréfin. Ýmsir möguleikar eru fyrir hendi varðandi sölu bréfanna og því óvíst hve mikil áhrifin yrðu á skuldabréfamarkaðinn."
Mest lesið Byrja að fljúga til Tromsø og oftar til Bergen Viðskipti innlent Er hagstætt að taka bílalán fyrir rafmagnsbíl? Viðskipti innlent Aðskotahlutur í lifrarpylsu: „Mál sem við tökum mjög alvarlega“ Neytendur Birgir Ómar Haraldsson er látinn Viðskipti innlent „Sé fyrir mér að fara að vinna færri daga og öðruvísi verkefni“ Atvinnulíf Kvika skráði ekki tugi þúsunda viðskipta og fær tugmilljóna sekt Viðskipti innlent Margborgar sig að gera við stjörnu í rúðu: Carglass hefur opnað á Íslandi Samstarf Auglýsingarnar súrari og skrýtnari en húmorinn í fyrirrúmi Viðskipti erlent Óli Páll til APRÓ Viðskipti innlent Allar auglýsingar Ofurskálarinnar á einum stað Viðskipti erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Menntadagur atvinnulífsins Byrja að fljúga til Tromsø og oftar til Bergen Þórður Már til Faxaflóahafna Fanney tekur við af Erni hjá Lex „Ekki hlutverk hins opinbera að ýta sparnaði fólks í íbúðir“ Vatn frá Ölfusi í sádiarabískri íþróttaþvottavél Bein útsending: Kraftmeiri sparnaður í seilingarfjarlægð? Óli Páll til APRÓ Er hagstætt að taka bílalán fyrir rafmagnsbíl? Kvika skráði ekki tugi þúsunda viðskipta og fær tugmilljóna sekt Birgir Ómar Haraldsson er látinn „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Sjá meira