Sala á raftækjum jókst um 15% í desember 12. janúar 2010 13:23
Sala á raftækjum í desember jókst um 15,3% á föstu verðlagi frá sama mánuði í fyrra og um 34% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Verð á raftækjum hækkaði um 16,2% frá desember 2008.Mikil aukning varð í veltu raftækjaverslana í desember frá síðasta ári hvort sem mælt er á breytilegu eða á föstu verðlagi. Leita þarf aftur til mars 2008 til að finna jafn mikla veltu að raunvirði í raftækjaverslun.Þetta kemur fram í nýjum tölum frá Rannsóknarsetri verslunarinnar um jólavertíðina hjá verslunum á síðasta ári.Velta í dagvöruverslun jókst um 1,7% á föstu verðlagi í desember miðað við sama mánuð árið áður og jókst um 9,6% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum nam aukning í veltu dagvöruverslana í desemer 3,1% frá sama mánuði árið áður. Verð á dagvöru hækkaði um 7,8% á síðastliðnum 12 mánuðum.Sala áfengis minnkaði um 2,3% í desember miðað við sama mánuð árið áður á föstu verðlagi og jókst um 13,8% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum nam samdráttur í veltu áfengis í desember 6,3% frá sama mánuði í fyrra. Verð á áfengi var 16,5% hærra í desember síðastliðnum en í sama mánuð í fyrra.Fataverslun var 2,3% minni í desember miðað við sama mánuð árið áður á föstu verðlagi en jókst um 13,1% á breytilegu verðlagi á sama tímabili. Verð á fötum var 18,5% hærra í desember síðastliðnum en í sama mánuði ári fyrr.Velta skóverslunar jókst um 2,0% í desember á föstu verðlagi og um 22,7% á breytilegu verðlagi miðað við sama mánuð í fyrra. Verð á skóm hækkaði í desember um 20,3% frá desember í fyrra.Velta húsgagnaverslana var 1,1% minni í desember en í sama mánuði í fyrra á föstu verðlagi og 23,5% minni á breytilegu verðlagi. Verð á húsgögnum var 11,9% hærra í desember síðastliðnum miðaða við sama mánuð í fyrra.Þá er athyglisvert að aukning varð í veltu dagvöruverslunar í desember síðastliðnum frá sama mánuði ári áður. Hér er um raunaukningu að ræða á milli ára því þegar bæði hefur verið tekið tillit til verðlagsbreytinga á tímabilinu og leiðrétt fyrir daga- og árstíðabundnum þáttum nam veltuaukningin 3,1% en slík aukning á milli ára hefur ekki orðið síðan um mitt ár 2008. Þó ber að hafa í huga í þessum samanburði að jólaverslun í fyrra dróst mikið saman frá fyrri árum.Jólaverslun með föt dróst hins vegar saman bæði í nóvember og desember frá sama tímabili í fyrra á föstu verðlagi en skóverslun jókst báða þessa mánuði. Greinilegt er að landsmenn hafa dregið úr fatakaupum á síðustu tveimur árum því velta faraverslunar var 26,3% meiri í desember 2007 en í desember síðastliðnum. Skóverslun í desember 2007 var 21,1% meiri en í desember síðastliðnum, mælt á föstu verðlagi.
Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Kviku banka Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent „Þetta er sögudrifinn söngleikur með rómantísku ívafi“ Atvinnulíf Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Viðskipti innlent Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Sjá meira