Jon Bon Jovi þénaði mest 30. desember 2010 07:52 Tónleikaför hljómsveitar Jon Bon Jovi skilaði miklum tekjum. Mynd/AFP
Bandaríski tónlistarmaðurinn Jon Bon Jovi þénaði mest á tónleikum á árinu eða rúmlega 200 milljónir. Hljómsveit hans tróð upp 80 sinnum á árinu. Tónleikaför hljómsveitar Bon Jovi skilaði miklum tekjum eða rúmlega 200 milljónum Bandaríkjadollara. Það eru um 24 milljarðar íslenskra króna. Samkvæmt árlegu yfirliti tímaritsins Pollstar þénaði ástralska þungarokksveitin AC/DC 177 milljónir dollara og í þriðja sæti listans eru írsku rokkrisarnir í U2 en sveitin skilaði mestum tekjum á síðasta ári. Í ár þénaði sveitin um 160 milljónir dollara. Söngkonan Lady Gaga er í fjórða sæti listans og hljómsveitin Metallica er í því fimmta. U2 tróð upp á 32 tónleikum, AC/DC á 40 og hljómsveit Bon Jovi kom fram á 80 tónleikum. Á einum þeirra meiddist söngvarinn á kálfa en hann lét það ekki á sig fá og lauk tónleikunum, þrátt fyrir að hafa þurft að haltra um sviðið. Árið hefur verið annasamt hjá Bon Jovi en nýverið skipaði Barack Obama, Bandaríkjaforseti, tónlistarmanninn í nefnd sem ætlað er að veita Hvíta húsinu ráðgjöf um aukið samstarf fyrirtækja, hjálpar- og góðgerðarsamtaka, almennings og stjórnvalda.
Mest lesið Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira