Icelandair Group tapaði 10,7 milljörðum í fyrra 30. apríl 2010 14:58 Heildarvelta var 80,3 milljarðar króna og jókst um 11% á milli ára. Afskriftir voru 6,7 milljarðar króna sem er lækkun um 3,7 milljarða kr. frá fyrra ári.
Icelandair Group tapaði 10,7 milljörðum kr. á síðasta ári en tapið nam 7,5 milljörðum kr. árið 2008. Þetta kemur fram í tilkynningu um afkomu félagsins.Heildarvelta var 80,3 milljarðar króna og jókst um 11% á milli ára. Afskriftir voru 6,7 milljarðar króna sem er lækkun um 3,7 milljarða kr. frá fyrra ári.Fjármagnskostnaður var 6,0 milljarðar króna samanborið við 1,9 milljarða króna árið áður. Handbært fé í lok ársins 2009 var 1,9 milljarðar króna, en var 4,1 milljarður árið áður. Heildareignir námu 89,1 milljarði í lok árs 2009 og eiginfjárhlutfall var 16,4 % í lok árs 2009, en var 20,1% í lok árs 2008.„Það liggur fyrir að árið 2009 var afar erfitt í alþjóðlegum flugrekstri. Á árinu 2009 var hins vegar hagnaður bæði hjá Icelandair og Flugfélagi Íslands og bæði félög eru að skila sinni bestu afkomu í langan tíma," segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group í tilkynningunni.„Jafnframt var hagnaður af starfsemi Loftleiða, Bluebird og Iceland Travel. Fyrir þennan árangur þakka ég starfsfólki okkar sérstaklega. Hins vegar er mikið tap á árinu vegna ábyrgða sem Icelandair Group veitti SmartLynx árið 2007, vegna olíuvarna hjá Travel Service og síðast en ekki síst vegna mikillar skuldsetningar móðurfélagsins sem á rætur sínar að rekja til ársins 2006. Tap ársins 2009 má fyrst og fremst rekja til vandamála vegna of mikillar skuldsetningar fyrirtækisins í góðærinu.Fjármagnskostnaður á árinu 2009 nam sex milljörðum króna og jókst um ríflega fjóra milljarða króna frá árinu 2008. Mestu munar þar um tveggja milljarða króna tap af framvirkum samningum vegna gengisvarna á árinu 2009 en á árinu 2008 var 1,4 milljarða hagnaður tekjufærður vegna hagnaðar af framvirkum samningum. Vaxtagjöld jukust um 500 milljónir króna frá árinu 2008 og námu samtals 4,2 milljörðum árið 2009.Erlendar fjárfestingar hafa verið félaginu erfiður ljár í þúfu. Á árinu 2009 voru 4,2 milljarðar króna gjaldfærðir vegna taprekstrar og afskrifta viðskiptakrafna og óefnislegra eigna vegna lettneska flugfélagsins SmartLynx.Til viðbótar nam gjaldfærsla vegna tékkneska flugfélagsins Travel Service um 1,9 milljarði króna á árinu. Þar af nam gjaldfærsla eldsneytisvarna um einum milljarði króna og 900 milljónum vegna sölu á hlut í félaginu undir bókfærðu virði. Hvorugt félag tilheyrir kjarnastarfsemi Icelandair Group og stjórn fyrirtækisins hefur ákveðið að selja bæði félögin."
Mest lesið Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Sjá meira