Viðskipti innlent

Icelandair Group tapaði 10,7 milljörðum í fyrra

Heildarvelta var 80,3 milljarðar króna og jókst um 11% á milli ára. Afskriftir voru 6,7 milljarðar króna sem er lækkun um 3,7 milljarða kr. frá fyrra ári.
Heildarvelta var 80,3 milljarðar króna og jókst um 11% á milli ára. Afskriftir voru 6,7 milljarðar króna sem er lækkun um 3,7 milljarða kr. frá fyrra ári.
Icelandair Group tapaði 10,7 milljörðum kr. á síðasta ári en tapið nam 7,5 milljörðum kr. árið 2008. Þetta kemur fram í tilkynningu um afkomu félagsins.

Heildarvelta var 80,3 milljarðar króna og jókst um 11% á milli ára. Afskriftir voru 6,7 milljarðar króna sem er lækkun um 3,7 milljarða kr. frá fyrra ári.

Fjármagnskostnaður var 6,0 milljarðar króna samanborið við 1,9 milljarða króna árið áður. Handbært fé í lok ársins 2009 var 1,9 milljarðar króna, en var 4,1 milljarður árið áður. Heildareignir námu 89,1 milljarði í lok árs 2009 og eiginfjárhlutfall var 16,4 % í lok árs 2009, en var 20,1% í lok árs 2008.

„Það liggur fyrir að árið 2009 var afar erfitt í alþjóðlegum flugrekstri. Á árinu 2009 var hins vegar hagnaður bæði hjá Icelandair og Flugfélagi Íslands og bæði félög eru að skila sinni bestu afkomu í langan tíma," segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group í tilkynningunni.

„Jafnframt var hagnaður af starfsemi Loftleiða, Bluebird og Iceland Travel. Fyrir þennan árangur þakka ég starfsfólki okkar sérstaklega. Hins vegar er mikið tap á árinu vegna ábyrgða sem Icelandair Group veitti SmartLynx árið 2007, vegna olíuvarna hjá Travel Service og síðast en ekki síst vegna mikillar skuldsetningar móðurfélagsins sem á rætur sínar að rekja til ársins 2006. Tap ársins 2009 má fyrst og fremst rekja til vandamála vegna of mikillar skuldsetningar fyrirtækisins í góðærinu.

Fjármagnskostnaður á árinu 2009 nam sex milljörðum króna og jókst um ríflega fjóra milljarða króna frá árinu 2008. Mestu munar þar um tveggja milljarða króna tap af framvirkum samningum vegna gengisvarna á árinu 2009 en á árinu 2008 var 1,4 milljarða hagnaður tekjufærður vegna hagnaðar af framvirkum samningum. Vaxtagjöld jukust um 500 milljónir króna frá árinu 2008 og námu samtals 4,2 milljörðum árið 2009.

Erlendar fjárfestingar hafa verið félaginu erfiður ljár í þúfu. Á árinu 2009 voru 4,2 milljarðar króna gjaldfærðir vegna taprekstrar og afskrifta viðskiptakrafna og óefnislegra eigna vegna lettneska flugfélagsins SmartLynx.

Til viðbótar nam gjaldfærsla vegna tékkneska flugfélagsins Travel Service um 1,9 milljarði króna á árinu. Þar af nam gjaldfærsla eldsneytisvarna um einum milljarði króna og 900 milljónum vegna sölu á hlut í félaginu undir bókfærðu virði. Hvorugt félag tilheyrir kjarnastarfsemi Icelandair Group og stjórn fyrirtækisins hefur ákveðið að selja bæði félögin."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×