Ekkert formlegt tilboð komið í Iceland, margir áhugasamir 27. október 2010 12:16
Erlendur fjárfestingarsjóður sem lýst hafði yfir áhuga á að greiða jafnvirði 249 milljarða króna fyrir Iceland Foods verslanakeðjuna, hefur ekki gert formlegt tilboð ennþá. Það hefði þýtt tæplega 167 milljarða króna fyrir hlut skilanefndar Landsbankans í fyrirtækinu. Eins og Fréttastofa greindi frá nýlega hafði erlendur fjárfestingarsjóður lýst yfir áhuga á að kaupa verslanakeðjuna Iceland Foods, en sem er að stærstum hluta í eigu skilanefndar Landsbankans. Páll Benediktsson, talsmaður skilanefndarinnar, segir að ekki hafi átt sér stað formlegar viðræður milli sjóðsins og skilanefndarinnar vegna eignarhlutarins í Iceland Foods. Þá hafi ekkert tilboð borist frá sjóðnum ennþá. Miðað við þær verðhugmyndir sem komu fram í samskiptum fulltrúa sjóðsins við starfsmenn skilanefndarinnar verðlagði sjóðurinn fyrirtækið á 1,4 milljarða punda, jafnvirði 249 milljarða króna. Það jafngildir því að 67 prósenta hlutur skilanefndar Landsbankans sé tæplega 167 milljarða króna virði, en þetta eru fjármunir sem fara beint upp í forgangskröfur í þrotabúið, þ.e kröfur breskra og hollenskra sparifjáreigenda vegna Icesave-reikninga Landsbankans. Rekstur Iceland Foods gengur vel en Baldvin Valtýsson, fyrrverandi yfirmaður útibús Landsbankans í Lundúnum, líkti fyrirtækinu við stóra „peningamaskínu" í blaðaviðtali hinn 22. janúar á þessu ári. Sem kunnugt er gerði Malcolm Walker, sem ásamt öðrum lykilstjórnendum Iceland Foods heldur utan um 23 prósenta hlut í fyrirtækinu, tilboð í hlut Landsbankans en Walker verðlagði fyrirtækið í heild sinni á milljarð punda, jafnvirði 178 milljarða króna. Því tilboði var synjað af skilanefnd Landsbankans. Að sögn Páls Benediktssonar, talsmanns skilanefndarinnar, er hluturinn í Iceland Foods ekki í söluferli þó fjölmargir hafi sýnt fyrirtækinu áhuga.
Mest lesið Keypti hús við Sóleyjargötu af borginni á 310 milljónir Viðskipti innlent Fjórar týpur af yfirmönnum sem eru sjálfir að drukkna í vinnu Atvinnulíf Boða tæp 10% þjóðarinnar á hluthafafund Viðskipti innlent Tókst ekki að sýna fram á galla og situr uppi með körfuboltaskóna Neytendur Miðeind festir kaup á Snöru Viðskipti innlent Ráðin forstöðumaður hjá Eimskip Viðskipti innlent Minni þorskafli kosti fleiri milljarða Viðskipti innlent Verður nýr yfirlögfræðingur SFF Viðskipti innlent Löng röð myndaðist í Lágmúlanum á miðnætti Viðskipti innlent Topp fimm tólin í verkfærakistuna Samstarf Fleiri fréttir Boða tæp 10% þjóðarinnar á hluthafafund Miðeind festir kaup á Snöru Keypti hús við Sóleyjargötu af borginni á 310 milljónir Minni þorskafli kosti fleiri milljarða Verður nýr yfirlögfræðingur SFF Ráðin forstöðumaður hjá Eimskip Reon ræður inn hönnunarstjóra frá Spotify Kjarasamningar Play og ÍFF í höfn Greiddu 865 milljónir fyrir Herkastalann Löng röð myndaðist í Lágmúlanum á miðnætti Hrefna stýrir Attentus SFF hafna ásökunum bifreiðaeigenda „Klárlega“ breytingar í ytra umhverfi sem ÁTVR þurfi að laga sig að Vilborg Arna og Auðbjörg til liðs við FranklinCovey Þorgerður skipuð forstjóri ÁTVR „Ég veit ekki alveg hvað er að fara að gerast“ Ríkið greiddi 25 milljarða í laun Skor flytur: „Ansi þreytt“ að þurfa að reka fólk út klukkan tíu Meðallaun 758 þúsund á mánuði Saka hagfræðing SFF um að reyna að draga úr samkeppni í tryggingum Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Sveiflujöfnunarauki helst óbreyttur Ráðinn framkvæmdastjóri Janusar heilsueflingar Fyrsta sinni í mörg herrans ár neftóbakslaust í Leifsstöð Mun stýra Starfsþróunarsetri BHM Tilfallandi neftóbaksskortur veldur skjálfta 134 sagt upp í þremur hópuppsögnum Ingvi Steinn frá Arion til Defend Iceland Ferjuleiðir taka við rekstri ferjunnar Baldurs Nýr verslunarkjarni opnaður á Selfossi Sjá meira