Viðskipti innlent

Ísland í harðri samkeppni á sjávarafurðamörkuðum

Myndin er á vefsíðu LÍÚ: Vikudagur / Kristján Kristjánsson
Myndin er á vefsíðu LÍÚ: Vikudagur / Kristján Kristjánsson

Gústaf Baldvinsson, framkvæmdastjóri Ice Fresh Seafood, sölufyrirtækis Samherja í Bretlandi, segir Ísland eiga í harðri samkeppni á mörkuðum fyrir sjávarafurðir. Hann segir að á meðal helstu samkeppnisaðila séu t.d. Norðmenn sem búi við mikinn stöðugleika og öflugan stuðning stjórnvalda í markaðsstarfi og sölutryggingu afurða.

Þetta var á meðal þess sem fram kom í erindi hans á atvinnumálafundi Samherja á Hótel KEA í gærmorgun og greint er frá á vefsíðu LÍÚ. „Við vitum það, en það er misskilningur að heimurinn viti að okkar fiskur sé langbestur. Við erum litlir í alþjóðlegu samhengi," segir Gústaf og vísaði til umfangs íslensks sjávarútvegs.

Fundurinn í gær var sá fjórði sem Samherji heldur um atvinnumál í Eyjafirði. Húsfyllir var á fundinum en auk Gústafs flutti Jón Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri fiskeldis Samherja, erindi um bleikjueldi fyrirtækisins og stöðu þess á þeim markaði. Fundarstjóri varr Gunnar Larsen, framkvæmdastjóri kælismiðjunnar Frost.

Í erindi Gústafs kom fram að Samherji væri orðið eitt af stærstu og þekktustu sjávarútvegsfyrirtækjum í Evrópu og hefði áunnið sér orðstír fyrir gæði, afhendingaröryggi, vöruúrval og þjónustu. Hann sagði jafnframt að hugtakið ábyrgar fiskveiðar væri orðið að skilyrði kröfuharðra kaupenda sjávarafurða um heim allan.

Samherji selur sjávarafurðir fyrir 230 milljónir króna á hverjum degi. Allri starfsemi Samherja er stýrt frá Akureyri en félagið er með starfsemi víðs vegar um heiminn. Fyrirtækið veiðir árlega 390.000 tonn af fiski, stærstan hluta þess utan íslenskrar lögsögu. Fjölbreyttar afurðir Samherja, allt frá sjófrystum bolfiski til ferskrar bleikju úr eldisstöðvum fyrirtækisins, eru seldar til 45 landa víðs vegar um heim.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×