Nær helmingur telur skattabreytingar fækka starfsfólki 10. febrúar 2010 15:12
45% forsvarsmanna íslenskra fyrirtækja áætla að skattabreytingar stjórnvalda muni leiða til fækkunar starfsfólks í fyrirtækjum þeirra. Þá telja um 50% fyrirtækja í verslun að breytingarnar muni leiða til fækkunar starfsfólks og í iðnaði er talan um 47%.Þetta er niðurstaða könnunar sem Capacent gerði fyrir Viðskiptaráð í upphafi mánaðarins. Niðurstöður könnunarinnar verða birtar og útfærðar nánar í skýrslu um efnið sem kemur út samhliða Viðskiptaþingi. Þingið verður haldið þann 17. febrúar næstkomandi á Hilton Reykjavík Nordica, en nú þegar hafa yfir 200 þátttakendur skráð sig á þingið og er gert ráð fyrir húsfylli.Viðskiptaráð hefur bent á nauðsyn þess að jafnvægi ríki á milli stærðar hins opinbera og einkageirans. Riðlist þetta jafnvægi er erfitt að sjá hvaða tekjur eigi að standa undir rekstri hins opinbera til lengri tíma.Fram til þessa hefur aðlögun í kjölfar efnahagskreppunnar nánast eingöngu átt sér stað hjá hinum almenna vinnumarkaði. Þegar allt kemur til alls eru verkefni hins opinbera fjármögnuð af almenna vinnumarkaðnum og algjört grundvallaratriði að almennur vinnumarkaður hafi burði til að standa undir þeim. Í skýrslu komandi Viðskiptaþings um ríkisfjármál kemur fram, svo ekki verður um villst, að umsvif hins opinbera hafa vaxið hröðum skrefum á undanförnum áratugum. Það er því lykilatriði að langtímastefna stjórnvalda stefni að því að aðlögunin fari fram í ríkari mæli með hagræðingu í ríkisrekstri fremur en stöðugum skattahækkunum. Niðurstaða könnunar þingsins sýnir svo ekki verður um villst að skattahækkanir muni reynast skammgóður vermir í baráttunni við skuldavanda ríkissjóðs.
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira