Danskur auðmannabanki óskar eftir greiðslustöðvun 10. febrúar 2010 13:13
Danski auðmannabankinn (velhaverbanken) Capinordic Bank hefur óskað eftir greiðslustöðvun. Capinordic getur ekki uppfyllt kröfur um eiginfjárhlutfall og milljarða danskra kr. tap er framundan.Í frétt um málið í Jyllands Posten segir að upphaflega hafi Capinordic fengið frest hjá fjármálaeftirlitinu til 3. febrúar s.l. til að koma eiginfjárhlutfalli sínu í lag. Sá frestur var síðan framlengdur til í dag.Á meðan á frestinum stóð reyndi Capinordic ákaft að útvega það fjármagn sem til þurfti en án árangurs. Þrátt fyrir beiðni um greiðslustöðvun telur stjórn bankans að eigið fé hans dugi fyrir útistandandi skuldbindingum að því er segir í tilkynningu um málið.Fyrir utan að geta ekki uppfyllt kröfur um eiginfjárhlutfall er allt útlit fyrir að Capinordic muni sýna tap upp á 1.275 til 1.375 milljón danskrar kr. fyrir árið í fyrra. Þetta er snöggtum meira tap en stjórn bankans greindi fjárfestum sínum frá í síðasta mánuði. Þá lágu tölurnar um tapið á bilinu 140 til 170 milljónir danskra kr.Frá því í morgun hafa hlutabréf í Capinordic hrapað á markaðinum í Kaupmannahöfn. Nú skömmu fyrir lokun markaðarins hafði gengi þeirra lækkað um rúmt 21%.Capinordic hefur viðurnefnið „velhaverbanken" í Danmörku þar sem viðskiptavinir hans hafa einkum verið danskir auðmenn eða hinir efnameiri Danir í gegnum árin.
Mest lesið Sætta sig ekki við höfnun Kviku Viðskipti innlent Skrautleg saga laganna hans Bubba Viðskipti innlent Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Viðskipti innlent Svona mikið kostar kaffið á Starbucks hér á landi Neytendur Sorglegt að þurfa að hætta rekstri eftir 38 ár í Hveragerði Viðskipti innlent Lofar bongóblíðu við langþráð langborð Viðskipti innlent Starbucks opnaði á Laugavegi í dag Viðskipti innlent Trausti Sigurður og Jóhanna nýir forstöðumenn hjá VÍS Viðskipti innlent Krefja nýjan rektor um að skólinn fari að lögum Viðskipti innlent Minnstu sparisjóðirnir sameinast Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kynna nýtt kerfi gegn „gervigreindarsópum“ SAS í sókn og kaupir 55 brasilískar vélar Forstjóri Flügger ákærður fyrir brot á viðskiptaþvingunum „Alltaf leiðindamál að lenda í svona“ Loka fyrir færslur á Workplace í haust Trump segir sjaldgæfa málma og segla aftur á leið til Bandaríkjanna Viðvörunarbjöllur glymja vegna Kína og sjaldgæfra málma Tollar á ál og stál hækka Sjá meira