AGS gagnrýnir ehf-væðingu síðustu ára 14. júlí 2010 07:00 Fulltrúar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Breyta ætti skattareglum svo einkahlutafélög einyrkja þurfi að greiða tekjuskatt af greiðslum til eigenda að mati sérfræðinga AGS. Þeir telja núverandi fyrirkomulag ófullnægjandi. Leggja til kerfi svipað og á hinum Norðurlöndunum. Lagt er til að ýmsar breytingar verði gerðar á íslenska skattkerfinu í skýrslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) sem unnin var fyrir íslensk stjórnvöld. Í skýrslunni er farið yfir kosti og galla íslenska kerfisins. Sérfræðingar sjóðsins segja það að mörgu leyti gott, sér í lagi þar sem það sé fremur einfalt og með fáum undantekningum. Skattkerfið er þó fráleitt gallalaust að mati AGS, og eru meðal annars gerðar athugasemdir við svokallaða ehf-væðingu sem orðið hefur á undanförnum árum. Undanfarið hafa einyrkjar haft umtalsverðan hag af því að stofna einkahlutafélög utan um reksturinn til að geta tekið hluta af tekjunum af vinnu sinni út úr félögunum sem hagnað en ekki hefðbundin laun. Af venjulegum tekjum greiða launamenn skatt á bilinu 37,2 til 46,1 prósent. Af hagnaði fyrirtækja er hins vegar greiddur samtals 32,7 prósenta skattur. Til að koma í veg fyrir að einyrkjar greiði sjálfum sér engin laun og taki allar tekjur umfram útgjöld sem hagnað þurfa þeir að greiða sjálfum sér eðlileg laun. Ríkið ákveður á hverju ári hver lágmarkslaun í hinum ýmsu stéttum einyrkja eru, allt frá smiðum að taugaskurðlæknum. Allt umfram launin, sem kölluð eru reiknað endurgjald, er svo hægt að taka út sem hagnað, og greiða af því lægri skatt. Sérfræðingar AGS gera alvarlegar athugasemdir við þetta kerfi, og segja það ófullnægjandi. Þeir benda á að lágmarkslaun hinna ýmsu stétta virðist allt of lág, og þau hafi ekki hækkað frá árinu 2007, þrátt fyrir miklar breytingar á almennum launum frá þeim tíma. AGS leggur til að farin verði sama leið hér á landi og á hinum Norðurlöndunum til að koma í veg fyrir þetta vandamál. Í Noregi, Finnlandi og Svíþjóð eru notuð annars konar kerfi, sem taka mætti upp hér á landi, að mati sjóðsins. Þar er sett ákveðið hámark á hagnað fyrirtækja byggt á eignum þeirra. Leyfilegt er að taka eðlilegan hagnað út úr fyrirtækjunum, en allt umfram það verður að reikna sem laun. Þetta þýðir að lítil einkahlutafélög með takmarkaðar eignir verða að fara með greiðslur til eigenda, sem jafnframt eru starfsmenn félagsins, eins og laun.
Mest lesið 134 sagt upp í þremur hópuppsögnum Viðskipti innlent Lausnamiðuð ferilskrá og að þora Atvinnulíf Ingvi Steinn frá Arion til Defend Iceland Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Nýr verslunarkjarni opnaður á Selfossi Viðskipti innlent Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Viðskipti innlent Algeng mistök sem fólk gerir þegar það sækir um starf og góð ráð Atvinnulíf Ferjuleiðir taka við rekstri ferjunnar Baldurs Viðskipti innlent Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Viðskipti innlent Íslensk fyrirtæki geti endurheimt verulegar fjárhæðir Viðskipti innlent Fleiri fréttir 134 sagt upp í þremur hópuppsögnum Ingvi Steinn frá Arion til Defend Iceland Ferjuleiðir taka við rekstri ferjunnar Baldurs Nýr verslunarkjarni opnaður á Selfossi Íslensk fyrirtæki geti endurheimt verulegar fjárhæðir Í hópi þeirra sem hlutu Viator Experience-verðlaunin Heiður Björk tekur við eftir brotthvarf Gunnars Egils GeoSilica hefur framleiðslu á Þeistareykjum Sigurður Jökull stýrir Cruise Iceland Taka við nýjum forstöðumannastöðum hjá Krónunni Dolores ráðin forstöðumaður hjá OK Shein ginni neytendur til skyndikaupa Annar banki býður betra verð en hinn með sömu eigendur Þau keyptu fyrir tuttugu milljónir í útboðinu Sameining við Kviku banka mun taka langan tíma „Grindavíkuráhrifin“ leiða til talsverðrar hækkunar hjá nágrönnum Indó skoraði hæst í Sjálfbærniásnum Fasteignamat hækkar um 9,2 prósent á milli ára Bein útsending: Fasteignamat 2026 kynnt Verðbólga lækkar um 0,4 stig Kvika vinsælasta stelpan á ballinu Bein útsending: Viðurkenningarhátíð Sjálfbærniássins Auður hefur innreið sína á húsnæðislánamarkað Vextir lækka hjá Íslandsbanka Lokun kísilvers á Bakka: „Þetta er grátbölvað“ Arion vill sameinast Kviku Birta lista yfir kaupendur: Á annað þúsund keypti fyrir tuttugu milljónir Bein útsending: Ársfundur Samáls Vilja að stjórnvöld greiði leið kísilversins á Bakka Play tekur flugið til Agadir Sjá meira