Mikilvægt að Icesave samningar takist fljótlega 5. desember 2010 18:31
Forstjóri Eftirlitsstofnunar EFTA segir að íslensk stjórnvöld hafi ekki óskað eftir frekari frestun á að skila svari sínu vegna Icesave. Hann segir mikilvægt að samningar takist við Breta og Hollendinga fljótlega. Ef stjórnvöld nái hins vegar að sannfæra stofnunina um að mat hennar á greiðsluskyldu ríkisins sé rangt verði málið látið niður falla. Lokafrestur stjórnvalda til að andmæla Eftirlitsstofnun EFTA vegna Icesave málsins rennur út á þriðjudaginn. Við náðum tali af forstjóra ESA í dag, sem segist búast við svarinu þá. „Okkur hefur ekki borist nein beiðni um frestun á núverandi skilafresti, 7. desember," segir Per Sanderud, forstjóri Eftirlitsstofnunar EFTA. Í fyrsta mati sínu kemst stofnunin að þeirri niðurstöðu að Íslendingum beri skylda til að greiða breskum og hollenskum sparifjáreigendum þá lágmarkstryggingu sem tilskipun um innistæðutryggingar kveður á um. Til þess að fullnægja þessu þurfi að semja við Breta og Hollendinga, og best væri að gera það sem fyrst að mati forstjóra ESA. „Við vitum að íslenska ríkisstjórnin ætlar að leggja frumvarpið fyrir Alþingi og þá kemur í ljós hvort það samþykkir samninginn og ef það gerir það verður enginn málarekstur," segir Per. Ef svar berst frá íslenskum stjórnvöldum sem ekki dugar til að snúa ESA við í afstöðu sinni mun stofnunin senda eitt lokaviðvörunarbréf og síðan fara með málið fyrir EFTA dómstólinn. Ef hins vegar tækist að sannfæra ESA um að upphaflega mat þeirra á ábyrgð Íslendinga sé rangt, verður málið látið niður falla - og þannig viðurkennt að íslenska ríkinu beri ekki skylda til að greiða Icesave. „En þá verðið þið að koma með mjög góðan lögfræðilegan rökstuðning fyrir því að fyrsta mat okkar hafi ekki verið rétt," segir Per. Eins og fréttastofa hefur greint frá liggja fyrir drög að samkomulagi milli saminganefndar Íslands, Bretlands og Hollands, og tekist hefur að semja um meginatriði málsins. Þó munu enn nokkur ágreiningsmál standa út af borðinu. Heimildir herma að staða málsins hafi verið kynnt þingflokkum stjórnarandstöðunnar nýlega.
Tengdar fréttir Drög að Icesave samkomulagi kynnt Drög að nýju Icesave samkomulagi hafa verið kynnt þingflokkum stjórnarandstöðunnar. Samninganefndir Íslands, Bretlands og Hollands stefna að því að ljúka við gerð samnings sem allra fyrst. 5. desember 2010 12:01 Nýtt samkomulag nánast tilbúið Margframlengdur frestur stjórnvalda til að skila svari til Eftirlitsstofnunar EFTA vegna Icesave rennur út á þriðjudag. Mikið er þrýst á þingmenn stjórnarandstöðunnar að veita drögum að nýjum Icesavesamningi blessun sína, svo komast megi hjá því að málið fari fyrir EFTA-dómstólinn. 4. desember 2010 18:29 Mest lesið „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Verðbólga eykst verulega Viðskipti innlent Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Viðskipti innlent Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Hvetja neytendur til að vera á varðbergi eftir áramót Neytendur Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Viðskipti innlent Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Fleiri fréttir Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Hvað græði ég á að leggja aukalega inn á lánið? Edda Rós til Hagstofunnar Fjármálaráðuneytið: „Ekki tapa peningum“ Sjá meira
Drög að Icesave samkomulagi kynnt Drög að nýju Icesave samkomulagi hafa verið kynnt þingflokkum stjórnarandstöðunnar. Samninganefndir Íslands, Bretlands og Hollands stefna að því að ljúka við gerð samnings sem allra fyrst. 5. desember 2010 12:01
Nýtt samkomulag nánast tilbúið Margframlengdur frestur stjórnvalda til að skila svari til Eftirlitsstofnunar EFTA vegna Icesave rennur út á þriðjudag. Mikið er þrýst á þingmenn stjórnarandstöðunnar að veita drögum að nýjum Icesavesamningi blessun sína, svo komast megi hjá því að málið fari fyrir EFTA-dómstólinn. 4. desember 2010 18:29