Eva Joly segist ekki hafa spillt Exeter-málinu 17. október 2010 12:57 Eva Joly lét af störfum sem ráðgjafi sérstaks saksóknara sl. miðvikudag. Mynd/Valli
Eva Joly, fyrrverandi ráðgjafi sérstaks saksóknara, segist ekki hafa spillt rannsókn embættisins í Exeter-málinu. Lögmaður fyrrverandi forstjóra MP banka segir Joly hafa mælt fyrir um óhefðbundnar rannsóknaraðgerðir í Exeter-málinu og að þær hafi í ýmsum tilvikum leitt til ólögmætra aðgerða við rannsóknina. Joly sagði þetta afleita röksemdarfærslu þegar rætt var við hana í Silfri Egils í dag. Það væri aftur á móti eðlilegt að verjandinn skyldi hafa beitt henni. Joly sagðist hafa starfað sem sérfræðingur hjá embættinu og verið samningsbundin. Hún sæi því ekki hver vandinn væri. „Ég tel þetta ekki vera neitt vandamál." Gagnrýnin á Joly kemur fram í greinargerð sem Ragnar H. Hall, lögmaður Styrmis Þórs Bragasonar fyrrverandi forstjóra MP banka, hefur lagt fram í málinu. Fréttablaðið fjallaði um málið um síðustu helgi. Exeter-málið svokallaða er hið eina sem sérstakur saksóknari hefur gefið út ákæru í. Það snýst um ríflega eins milljarðs lánveitingar Byrs til félagsins Exeter Holdings fyrir kaupum á stofnfjárbréfum í sparisjóðnum, af MP banka og stjórnarmönnum í sjóðnum.Kveður með söknuði Eva Joly lét á miðvikudaginn af störfum sem ráðgjafi sérstaks saksóknara. Hún hyggst einbeita sér að forsetaframboði sínu fyrir Græningja í Frakklandi og sagðist kveðja starfið með söknuði. Joly sagðist í viðtalinu í Silfri Egils vera ánægð með hvernig embættið hefði verið byggt upp frá því að hún kom þangað til starfa skömmu eftir bankahrun. Nú starfi jafn margir hjá embættinu og hjá frönsku efnhagsbrotalögreglunni. Þá sagðist Joly telja að stjórnvöld hér á landi ættu að íhuga að koma á fót sérstöku dómsvaldi sem tæki á efnahagsbrotum.
Tengdar fréttir Segir Evu Joly hafa spillt Exeter-málinu Lögmaður fyrrverandi forstjóra MP banka segir Evu Joly hafa mælt fyrir um óhefðbundnar rannsóknaraðgerðir í svokölluðu Exeter-máli og þær hafi í ýmsum tilvikum leitt til ólögmætra aðgerða við rannsóknina. Vísa beri málinu frá vegna þess að sérstakur saksóknari hafi ekki haft lögbundið sjálfstæði í störfum sínum. Hann hefur sent ráðherrum bréf vegna málsins. 9. október 2010 08:30 Rannsókn sérstaks sögð ónýt markleysa Sérstakur saksóknari hafði ekki heimild samkvæmt lögum til að rannsaka málefni Byrs og því ber að vísa svokölluðu Exeter-máli frá dómi. Þetta er samhljóða niðurstaða verjenda sakborninganna þriggja í málinu. 8. október 2010 05:00 Mest lesið Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira
Segir Evu Joly hafa spillt Exeter-málinu Lögmaður fyrrverandi forstjóra MP banka segir Evu Joly hafa mælt fyrir um óhefðbundnar rannsóknaraðgerðir í svokölluðu Exeter-máli og þær hafi í ýmsum tilvikum leitt til ólögmætra aðgerða við rannsóknina. Vísa beri málinu frá vegna þess að sérstakur saksóknari hafi ekki haft lögbundið sjálfstæði í störfum sínum. Hann hefur sent ráðherrum bréf vegna málsins. 9. október 2010 08:30
Rannsókn sérstaks sögð ónýt markleysa Sérstakur saksóknari hafði ekki heimild samkvæmt lögum til að rannsaka málefni Byrs og því ber að vísa svokölluðu Exeter-máli frá dómi. Þetta er samhljóða niðurstaða verjenda sakborninganna þriggja í málinu. 8. október 2010 05:00