Krónan ekki sterkari gagnvart evru frá miðju sumri 1. febrúar 2010 11:31
Eftir styrkingu krónu í síðustu viku er hún nú sterkari gagnvart evru en hún hefur verið frá miðju síðasta sumri. Krónan styrktist um tæpt prósent gagnvart evru í vikunni er leið og kostar evran nú 177,5 kr. á innlendum gjaldeyrismarkaði, en hæst fór evran í rúmar 186 kr. í annarri viku nóvembermánaðar í fyrra. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að styrking krónu gagnvart evru nemur því tæplega 5% frá þeim tíma. Staðan gagnvart öðrum gjaldmiðlum hefur þó minna breyst, enda hefur evran veikst töluvert gagnvart þeim flestum undanfarið, eins og fjallað er um hér að neðan. Viðskiptavegin gengisvísitala er þannig í svipuðu gildi og í september á síðasta ári, en miðað við hana hefur krónan þó styrkst um rúm 2% undanfarna þrjá mánuði. Greiningin segir að styrkingu krónunnar undanfarið má vafa lítið rekja til hertra gjaldeyrishafta, sem að mestu hafa ráðið niðurlögum aflandsmarkaðar með krónur og beint gjaldeyristekjum í auknum mæli inn fyrir landsteinana. Einnig virðist sem erlendir fjárfestar flýti sér hægt við að leysa til sín þær umtalsverðu vaxtatekjur sem þeir hafa fengið frá desemberbyrjun, bæði vegna vaxtagjalddaga ríkisbréfaflokksins RIKB1012 og eins vegna áramótaútgreiðslu vaxta af krónuinnstæðum þeirra í innlendum bönkum. Auk þess er hugsanlegt að innflæði tengt orkufrekum iðnaði eða annarri beinni fjárfestingu erlendra aðila hafi hér haft áhrif. Styrking krónu, þótt hófleg sé enn sem komið er, kemur væntanlega mörgum vel. Styrkingin hefur til að mynda haldið aftur af hækkun verðlags síðustu tvo mánuði, og gætu þau áhrif orðið sterkari ef kaupmenn styrkjast í þeirri trú að botni krónunnar hafi verið náð í fyrrahaust. Vart þarf svo að fjölyrða um hversu jákvæð áhrif styrking krónu á fyrirtæki og heimili, þar sem meginhluti höfuðstóls lána fylgir gengi krónu ýmist beint eða óbeint í gegn um verðtryggingu. Þá horfir Seðlabankinn mjög til gengisþróunar krónu þessa dagana, og mun verða viljugri til frekari lækkunar vaxta í mars og maí ef áframhald verður á svipaðri þróun og verið hefur undanfarið, að því er segir í Morgunkorninu.
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira