Framkvæmdastjóri hjá Seðlabankanum flaug í boði Glitnis og Milestone Breki Logason skrifar 1. febrúar 2010 12:01 Steingrímur Wernersson. Sturla segir að hann og Steingrímur séu bestu vinir. Mynd/ VB.
Framkvæmdastjóri alþjóða- og markaðssviðs Seðlabanka Íslands flaug tvisvar með einkaþotu sem Glitnir og Milestone leigðu saman. Hann segir þá Steingrím Wernerson vera bestu vini og flugu þeir á þotunni í frí. Á farþegarlistum koma meðal annars fyrir nöfn alþingismanns og aðstoðarmanns ráðherra í núverandi ríkisstjórn. Sigurður Sturla Pálsson hefur starfað í Seðlabanka Íslands frá árinu 2001, en hann er framkvæmdarstjóri alþjóða- og markaðssviðs. Nafn hans er á 110 manna lista sem birtur er í DV í dag yfir þá sem flugu með umræddri þotu. Í samtali við fréttastofu í morgun segist Sturla tvisvar hafa flogið með þotunni, í bæði skiptin var hann á leið í frí með Steingrími Wernersyni vini sínum. Hann segir að Steingrímur hafi tjáð sér á þessum tíma að þotan hafi verið í eigu þeirra Wernersbræðra. Hann vill ekki fara nánar út í hvert þeir flugu en segir þá eyða miklum frítíma saman. Sigurður segist ekki sjá neitt athugavert við að hann hafi flogið með þotunni. Í DV í morgun kemur einnig fram að Bogi Nilsson fyrverandi ríkissaksóknari hafi flogið með þotunni. Bogi segist einnig hafa verið á leið í frí en á þeim tíma hafi hann ekki starfað sem saksóknari. Til stóð, haustið 2008, að Bogi myndi stýra vinnu við gerð skýrslu um starfsemi Glitnis, Landsbankans og Kaupþings á árunum fyrir bankahrunið. Hann afþakkaði hinsvegar boðið. Fleiri áhugaverð nöfn eru á listanum. Má þar nefna Bjarna Ármannsson, Lárus Welding, Róbert Wessmann, Þorgils Óttar Mathiesen og Þór Sigfússon fyrrum forstjóra Sjóvár. Núverandi aðstoðarmaður samgönguráðherra Ingvar Sverrisson er einnig á listanum, en hann tók við sem aðstoðarmaður í september á síðasta ári. Þar áður starfaði hann á auglýsingastofunni Góðu Fólki. Alþingismaðurinn Tryggvi Þór Herbertsson er einnig á listanum en hann starfaði áður sem forstjóri Askar Capital.
Mest lesið Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Farþegar elska lopapeysur Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Viðskipti erlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Sjá meira