Ríkissjóður rekinn með 150 milljarða halla í fyrra 3. mars 2010 08:13
Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir árið 2009 liggur nú fyrir. Samkvæmt uppgjörinu er handbært fé frá rekstri neikvætt um rúma 150 milljarða kr., sem er 138,1 milljarða kr. lakari útkoma en árið 2008.Í tilkynningu um uppgjörið segir að tekjur reyndust 30,1 milljarða kr. minni en í fyrra á meðan gjöldin lækkuðu um 92,5 milljarða kr.Í árslok 2008 voru afskrifaðar tapaðar kröfur að upphæð tæpum 200 milljarða kr. sem hafði veruleg áhrif á bæði greidd gjöld desembermánaðar og breytingu viðskiptahreyfinga.Innheimtar tekjur ríkissjóðs á árinu 2009 voru 414,6 milljarðar kr. samkvæmt bráðabirgðatölum Fjársýslunnar. Það er 33,4 milljarða kr. minna en tekjur fyrra árs ef miðað er við endanlega niðurstöðu ársins 2008 (en þá munaði 0,8% á bráðabirgðatölum og endanlegum tölum ríkisreiknings á greiðslugrunni.) Heildartekjurnar eru 4,9% meiri en í áætlun fjárlaga og skatttekjurnar 1,0% meiri.Skatttekjur og tryggingagjöld námu 360,7 ma.kr. sem er 7,8% samdráttur að nafnvirði eða 20,6% að raunvirði miðað við hækkun almenns verðlags (VNV án húsnæðis). Skattar á tekjur og hagnað námu 138,8 milljarða kr. og drógust saman um 9,2% að nafnvirði og 21,8% að raunvirði samanborið við janúar-desember 2008. Það ber að hafa í huga að breyttar reglur um skil á fjármagnstekjuskatti skekkja samanburð milli ára.Greidd gjöld nema 551,5 milljörðum kr. og lækka um 92,5 milljarða kr. frá fyrra ári, eða um 14,4%. Óregluleg útgjöld skýra þessa lækkun en þau lækka um 189,5 miljarða kr. milli ára. Þessi lækkun skýrist að öllu leyti með liðnum tapaðar kröfur og tjónabætur en í lok árs 2008 var bókfært tap á kröfum sem ríkissjóður yfirtók frá Seðlabanka Íslands vegna falls bankanna að upphæð tæpum 200 milljarða kr.Milli ára hækka útgjöld vegna almennrar opinberrar þjónustu mest eða um 56,6 milljarða kr. þar sem vaxtagjöld ríkissjóðs skýra 50,3 milljarða kr. Útgjöld til almannatrygginga og velferðarmála aukast um 25,3 milljarða kr. sem skýrist að mestu með 22,6 milljarða kr. hækkun útgjalda Atvinnuleysistryggingasjóðs, 3,4 milljarða kr. hækkun á vaxtabótum og 1,2 milljarða kr. hækkun á barnabótum.
Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira