Varasamt að færa féð úr Englandsbanka 3. mars 2010 02:15 Breski seðlabankinn Á þriðja hundrað milljarðar króna í eigu bús Landsbanka Íslands eru geymdir á lágvaxtareikningi í breska seðlabankanum. Nordicphotos/afp
Þrotabú Landsbankans á háa fjárhæð, jafnvel 220 milljarða króna, á reikningi í Bank of England sem er seðlabanki Englands. Vextir á reikningnum eru mjög lágir eins og jafnan er með reikninga í seðlabönkum. Peningarnir eru afborganir af útlánum Landsbankans. Ástæða þess að peningarnir eru geymdir við jafn kröpp kjör og raun ber vitni er fyrst og fremst sú að skilanefnd Landsbankans hefur metið mjög áhættusamt að færa þá til ávöxtunar í viðskiptabönkum í Englandi. „Flestir stærri bankar í Englandi, sem og alþjóðlegu bankarnir sem þar starfa, hafa gert kröfur á Landsbankann. Það er því varasamt af okkar hálfu að færa féð til banka sem gæti fryst það á móti sínum kröfum," segir Páll Benediktsson, upplýsingafulltrúi skilanefndarinnar. Þó að kröfur banka í bú Landsbankans séu metnar almennar og ólíklegt talið að þær fáist greiddar gætu bankarnir hæglega ákveðið að frysta féð þar til endanlega yrði skorið úr um lögmæti krafna þeirra. Slíkt ferli gæti tekið nokkur ár. Páll segir leiða leitað til að koma peningunum á hagstæðari reikninga. „Við höfum unnið að því að reyna að finna traustar og áhættulitlar leiðir til að fá hærri vexti og það getur vel verið að slík leið finnist á næstu mánuðum. En fram til þessa hafa menn ekki talið sig hafa nægilega fast land undir fótum." En fleira spilar inn í. Í framhaldi bankahrunsins í október 2008 upphófust flóknar samningaviðræður við bresk yfirvöld um meðferð eigna og skulda Landsbankans í Lundúnum. Kröfðust Bretarnir meðal annars þess að taka yfir verðmæt lánasöfn bankans. Úr varð að Landsbankinn hélt sínu gegn því að féð yrði geymt tímabundið í Englandsbanka. Icesave-viðræðurnar hafa einnig haft sitt að segja og valdið tortryggni milli manna. Páll segir að hvað sem öðrum málum líði hafi skilanefnd Landsbankans forræði yfir peningunum. Áhættan á frystingu auk viðkvæmra samskipta milli landanna hafi ráðið því að til þessa hafi ekki verið ástæða til að taka stór skref í að hreyfa þessa fjármuni til. bjorn@frettabladid.is
Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Viðskipti innlent „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Viðskipti erlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira