Millifærslur Björgólfsfeðga til Tortóla í rannsókn Þorbjörn Þórðarson skrifar 11. janúar 2010 12:02
Þrotabú Samsonar, félags Björgólfsfeðga, rannsakar nú hvort feðgarnir hafi lánað sjálfum sér tæpan milljarð króna úr Samson og inn í eignarhaldsfélög á Tortóla-eyju. Engir lánasamningar virðast hafa verið gerðir. Sem kunnugt er höfðaði Þrotabú Samsonar, eignarhaldsfélags Björgólfsfeðga, fimm riftunarmál síðastliðið sumar gegn Björgólfi Guðmundssyni sjálfum og tengdum félögum vegna viðskipta sem áttu sér stað áður en Samson fór í greiðslustöðvun. Um var að ræða riftunarmál vegna lána og millifærslna upp á samtals 19 milljarða króna frá Samson til eigin félags í Lúxemborg, styrks til Knattspyrnufélags Reykjavíkur rétt eftir bankahrun og greiðslu á skuld Björgólfs Guðmundssonar við minningarsjóð dóttur hans. Jafnframt vildi þrotabúið rifta kaupum Samsonar á hlutabréfum í MGM eignarhaldsfélagi, en eina eign þess félags var hlutabréf í Árvakri, en þrotabúið vill meina að Samson hafi greitt óskiljanlegt verð fyrir hlutinn. Beðið er eftir greinargerðum frá þeim aðilum sem í hluta eiga vegna þessara málshöfðana. DV greinir síðan frá því í dag að Helgi Birgisson, skiptastjóri þrotabús Samsonar, sé að rannsaka afdrif lána Samsonar til fjögurra félaga á Tortóla-eyju, sem er ein af bresku Jómfrúreyjunum. Um er að ræða lán upp á samtals 800 milljónir króna, en svo virðist sem bókhaldi vegna umræddra lánveitinga hafi verið mjög ábótavant og engir lánasamningar verið gerðir. A.m.k eitt þessara félaga, Amber International, var stofnað af Björgólfi Thor Björgólfssyni. Helgi Birgisson sagði í samtali við fréttastofu í morgun að ekki hefði verið tekin ákvörðun um málshöfðanir vegna þessara lána. Hann sagði að unnið væri að því að komast að því hverjir ættu umrædd félög, en allt bendir til þess að þau séu einnig í eigu feðganna eða tengdra aðila. Eitt þeirra Opal Global Investments, rann inn í Samson Global Holdings í Lúxemborg, sem var í eigu feðganna.
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira