Endanlega gengið frá sölu FIH bankans í janúar 15. desember 2010 06:51
Endanlega verður gengið frá sölunni á FIH bankanum í Danmörku þann 6. janúar á næsta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum sem birt er á vefsíðu börsen. Sem kunnugt er af fréttum voru það slitastjórn Kaupþings og Seðlabankinn sem áttu FIH bankinn þar til snemma vetrar að hann var seldur til hóps fjárfesta sem samanstóð af tveimur stærstu lífeyrissjóðum Danmerkur, sænska tryggingarisanum Folksam og danska fjárfestinum Christian Dyvig. Aðkoma Seðlabankans að FIH var sökum þess að Seðlabankinn veitti Kaupþingi 500 milljóna evra lán korteri fyrir hrun Kaupþings haustið 2008. Lánið var með allsherjarverði í FIH bankanum. Lengi eftir hrunið var markaðsvirði FIH minna en nam þessu láni. Sú staða breyttist síðan dramatíkst m.a. sökum eignarhluta FIH í áhættusjóðnum Axcel. Með sölunni er tryggt að Seðlabankinn fái sitt og gott betur því stærsta eign Axcel, skartgripafyrirtæki Pandora, var sett á markað í vetur með hundruða milljarða kr. hagnaði fyrir eigendur Axcel þar á meðal FIH. Raunar fá Seðlabankinn og slitastjórn Kaupþing um 20 milljarða króna bónus ofan á söluverðið þökk sé Pandóru.
Mest lesið Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira