Endurreisn opinberra fjármála lýkur á næsta ári 30. nóvember 2010 09:19
Búist er við að endurreisn opinberra fjármála á Norðurlöndum verði lokið á næsta ári, m.a. vegna aðgerða landanna sem miða að því að tryggja stöðugleika og marka sjálfbæra fjármálastefnu til lengri tíma. Þetta kemur fram á vefsíðunni norden.org. Þar segir að norrænu fjármálaráðherrarnir hafi rætt á fundi sínum í Ósló þann 29. nóvember þau efnahagslegu og pólitísku úrlausnarefni sem Norðurlönd standa frammi fyrir. Atvinnuleysi hefur aukist á Norðurlöndum í kreppunni, þó það hafi verið tiltölulega lítið fyrir, sem þýðir að atvinnuleysi er undir meðallagi miðað við ríki Evrópusambandsins. Aðgerðir til að styrkja innviði vinnumarkaðarins og skapa atvinnu hafa verið forgangsmál á verkefnalista norrænu fjármálaráðherrunum. Haldið verður áfram samstarfi til að stöðva skattaundanskot. Frá árinu 2006 hafa norrænu ríkin gert 29 samninga fyrir milligöngu Norrænu ráðherranefndarinnar um upplýsingamiðlun við svokölluð aflönd eða skattaskjól. Þeir gera skattayfirvöldum norrænu ríkjanna kleift að kanna fjármuni fyrirtækja sem skráð eru í skattaparadísum og eru liður í því að uppræta skattsvik. Þetta samstarfsverkefni hefur nú verið framlengt og er reiknað með að því verði fram haldið til í júní 2012 og leiði til þess að gerðir verði enn fleiri samningar. Fjármálaráðherrarnir ræddu einnig hindranir sem verða til við lagasetningu á Norðurlöndum og torvelda norrænum borgurum og fyrirtækjum að starfa óháð landamærum. Ráðherrarnir voru sammála um að leggja áfram áherslu á afnám óþarfa stjórnsýsluhindarna.
Mest lesið Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira