Ætla í mál vegna mistaka og vanrækslu bankastarfsmanna Sigríður Mogensen skrifar 26. september 2010 18:36
Viðskiptavinir Glitnis og Kaupþings ætla í mál við Íslandsbanka og Arion vegna mistaka og vanrækslu bankastarfsmanna. Skaðabótakröfur á hendur Íslandsbanka einum nema fimm og hálfum milljarði króna. Bankar bjóða flestir upp á einkabankaþjónustu, sem snýr að sérfræðiþjónustu fyrir efnaða viðskiptavini. Algengt viðmið er að þurfa að eiga yfir 50 milljónir króna. Nokkrir fyrrverandi viðskiptavina einkabankaþjónustu Glitnis ætla að fara í skaðabótamál við Íslandsbanka vegna mistaka starfsmanna Glitnis, en þeir telja sig hafa orðið fyrir fjárhagstjóni vegna vanrækslu þeirra. Kröfurnar nema samtals um fimm og hálfum milljarði króna. Eitt mál hefur þegar verið höfðað fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Í hálfs árs uppgjöri Íslandsbanka segir að bankinn viðurkenni ekki þessar kröfur og muni verjast fyrir dómi. Rökin eru þau að skaðabótakröfurnar snúi að mistökum sem voru gerð fyrir tíð Íslandsbanka. Þau séu því ekki á ábyrgð þess banka á nokkurn hátt. Það sama er upp á teningnum hjá Arion banka. Nokkrir fyrrverandi viðskiptavina Kaupþings hafa stefnt bankanum og fara fram á skaðabætur vegna vanrækslu starfsmanna, sem valdið hafi þeim fjárhagstjóni. Arion banki telur að heildarlögfræðiáhætta bankans nemi um 1,5 milljarði króna. Ekki hefur verið tekið tillit til þessa í efnahagsreikningum bankanna tveggja. Þau svör fengust hjá Íslandsbanka og Arion að það sé ekki í samræmi við reikningsskilavenjur að færa tjón í bækurnar á meðan óvissa ríkir um skaðabótaábyrgð og upphæðir. Þá sé talið ólíklegt að tjónið lendi á nýju bönkunum, þar sem það hafi átt sér stað fyrir stofnun þeirra. Engin samskonar mál hafa verið höfðuð á hendur Landsbankanum, samkvæmt upplýsingum þaðan, en þó eru fjöldi annarra dómsmála í farvegi þar eins og hjá öllum bönkunum.
Mest lesið Regluverk setur langborðinu stólinn fyrir dyrnar Viðskipti innlent Veitingamenn óttist að styggja embættismenn Viðskipti innlent Keyptu Björgólf strax út úr Heimum Viðskipti innlent Stefán nýr útvarpsstjóri Sýnar Viðskipti innlent Vodafone, Stöð 2, Stöð 2+ og Stöð 2 Sport sameinast undir merki Sýnar Viðskipti innlent Dæmdur skattsvikari beri enga ábyrgð á fjármálum fyrirtækisins Viðskipti innlent Á erfitt með að tapa fyrir eiginmanninum í skrafli Atvinnulíf Steinkast og rispur? Ekki lengur vandamál með lakkvarnarfilmu frá Bónsvítunni Samstarf Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Kastrup opnar á ný eftir karp við heilbrigðiseftirlitið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Veitingamenn óttist að styggja embættismenn Regluverk setur langborðinu stólinn fyrir dyrnar Kvika segir hvorugt tilboð nægilega gott Keyptu Björgólf strax út úr Heimum Stólaleikur í Svörtuloftum Jón stýrir markaðsmálunum hjá N1 Stefán nýr útvarpsstjóri Sýnar Kastrup opnar á ný eftir karp við heilbrigðiseftirlitið Kjarasamningar undirritaðir fyrir nær allt launafólk Enn færri komast að í HR en vilja Sigríður Theódóra til Aton Dæmdur skattsvikari beri enga ábyrgð á fjármálum fyrirtækisins Stórfyrirtæki flýi borgina vegna skatta Skúli og félagar aftur sýknaðir af milljarðakröfum Magnús Þór leggur Samtökum iðnaðarins ráð Búinn að afnema regluverkið sem tafði fyrir opnun Kastrup Segir ljóst að SVEIT hafi eitthvað að fela Íris nýr sviðsstjóri hjá VSB verkfræðistofu SVEIT kærir dagsektir Samkeppniseftirlitsins Vodafone, Stöð 2, Stöð 2+ og Stöð 2 Sport sameinast undir merki Sýnar Starbucks frestar opnun fram í lok sumars SVEIT þarf að greiða milljón á dag þar til gögn eru afhent Embla Medical hlaut útflutningsverðlaun forsetans og Ragnar Kjartans heiðraður Aukinn samdráttur á flugi til Íslands með breyttu Play Skattur á atvinnuhúsnæði hækkað um helming á áratug Tekur við fyrirtækjaráðgjöf Arion banka Hlutabréf Play ruku upp við opnun markaða „Erum bara að hætta þeirri starfsemi sem hefur gengið illa“ Áttatíu milljóna gjaldþrot Heimabakarís á Húsavík Vilja taka yfir Play Sjá meira