Viðskipti innlent

Báðum tilboðum í Smáralind var hafnað

Það er niðurstaða stjórnar Fasteignafélags Íslands, eiganda Smáralindar, að hvorugt kauptilboðið sem barst í Smáralind sé viðunandi og hefur þeim því báðum verið hafnað.

Í tilkynningu segir að þann 22. september voru opnuð tilboð í hlutafé Eignarhaldsfélagsins Smáralindar ehf. sem verið hefur í opnu söluferli frá því í apríl sl. Alls bárust tvö tilboð í félagið og hafa þau verið yfirfarin og metin.

Eignarhaldsfélagið Smáralind ehf. á og rekur verslunarhúsnæðið Smáralind sem er í Hagasmára 1 í Kópavogi. Félagið er í góðum rekstri og hefur sýnt stöðuga afkomu síðustu misseri, allt bendir því til að félagið muni halda áfram að styrkjast.

Með hliðsjón af því er það mat stjórnar Fasteignafélags Íslands ehf. að hag félagsins sé best borgið með því að halda áfram rekstri Smáralindar undir núverandi eignarhaldi enn um sinn, en að leita jafnframt annarra sölutækifæra síðar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×