Völd Icesave-arkitektsins aukast enn 21. janúar 2010 19:00
Landsbankinn er að eignast bæði Atorku og Icelandic Group og munu fyrirtækin renna inn í Vestia, dótturfélag Landsbankans. Gert er ráð fyrir að Steinþór Baldursson, framkvæmdastjóri Vestia, verði stjórnarformaður beggja fyrirtækja. Á hluthafafundi Atorku á morgun verður lögð fram tillaga stjórnar um niðurfærslu hlutafjár í samræmi við nauðasamning félagsins. Í framhaldinu verður hlutafé hækkað aftur og kröfuhafar taka Atorku yfir. Landsbankinn sem stærsti kröfuhafi félagsins verður meirihlutaeigandi. Steinþór Baldursson, framkvæmdastjóri Vestia, dótturfélags Landsbankans, sagði í samtali við fréttastofu að ný stjórn yrði kjörin í Atorku í febrúar. Er gert ráð fyrir að Steinþór verði stjórnarformaður félagsins, en tekin verður lokaákvörðun um það þegar nær dregur. Steinþór Valur Ólafsson, starfsmaður Vestia, hefur þegar verið skipaður stjórnarformaður Prómens, en fyrirtækið er ein helsta eign Atorku. Þá er Icelandic Group, sem áður starfaði undir merkjum Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, einnig að renna í faðm Landsbankans, en ekki liggur fyrir hvenær fulltrúi Vestia kemur að stjórn félagsins með formlegum hætti. Steinþór Baldursson sagði í samtali við fréttastofu að gert væri ráð fyrir að hann yrði stjórnarformaður Icelandic Group sem fulltrúi Vestia. Eins og fréttastofa hefur áður greint frá er Steinþór eini lykilstjórnandi Landsbankans sem kom að Icesave-verkefninu á stjórnunarstigi, sem enn er í stjórnunarstöðu hjá bankanum, en Steinþór stýrði þar verkferlum og var eins konar hægri hönd Sigurjóns Þ. Árnasonar bankastjóra í málum tengdum Icesave. Vestia hefur þegar tekið yfir bæði Húsasmiðjuna og Teymi, móðurfélag Vodafone og Tals. Steinþór er stjórnarformaður Húsasmiðjunnar og situr í stjórn Teymis. Steinþór sagði í samtali við fréttastofu að vegna verkefna sem tengjast yfirtökunni á Icelandic Group myndi hann fara úr stjórnum nokkurra fyrirtækja sem hann sæti nú í fyrir hönd Vestia og nefndi þar Geysi Green Energy og Teymi til sögunnar.
Tengdar fréttir Icesave-arkitekt réð föðurbróður Hannesar Smárasonar sem Húsasmiðjuforstjóra Steinþór Baldursson, stjórnarformaður Húsasmiðjunnar og fyrrverandi yfirmaður alþjóðasviðs Landsbankans og einn af arkitektum Icesave, beitti sér fyrir ráðningu Sigurðar Arnars Sigurðssonar í stól forstjóra Húsasmiðjunnar. Sigurður Arnar er föðurbróðir og viðskiptafélagi Hannesar Smárasonar. 15. janúar 2010 18:45 Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira
Icesave-arkitekt réð föðurbróður Hannesar Smárasonar sem Húsasmiðjuforstjóra Steinþór Baldursson, stjórnarformaður Húsasmiðjunnar og fyrrverandi yfirmaður alþjóðasviðs Landsbankans og einn af arkitektum Icesave, beitti sér fyrir ráðningu Sigurðar Arnars Sigurðssonar í stól forstjóra Húsasmiðjunnar. Sigurður Arnar er föðurbróðir og viðskiptafélagi Hannesar Smárasonar. 15. janúar 2010 18:45