Þingmaður VG: Mun ekki heldur styðja ríkisstjórnina 25. júlí 2010 12:10 Þuríður Backman þingmaður VG.
Þingmaður Vinstri grænna segist eiga afar erfitt með að styðja þá ríkisstjórn sem ekki gerir allt sem í hennar valdi stendur til að stöðva kaup Magma Energy á HS Orku. Þuríður Backman, þingmaður Vinstri grænna, segir þungt hljóð í þingflokki Vinstri grænna vegna kaupa Magma Energy á HS Orku, enda gangi kaupin þvert á stefnu flokksins. Henni þyki sárt að sjá hversu langt kaupin hafa gengið. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingflokksformaður Vinstri Grænna, sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær að hún gæti ekki stutt ríkisstjórnina áfram ef ekkert verði gert í málinu og sagði að það væri ríkisstjórnarinnar og ráðherra hennar að aðhafast. Þuríður tekur í svipaðan streng og segir að það verði að koma í veg fyrir að kaupin nái fram að ganga. „Kaup þessa fyrirtækis sem eru að fara þessa leið, mér finnst þetta svo alvarlegur atburður fyrir alla framtíðina og stríðir svo gegn okkar stefnu að ég ætti mjög erfitt með að styðja þá ríkisstjórn sem gerir ekki allt sem í hennar valdi stendur til að koma í veg fyrir að þessi sala nái fram að ganga." Þuríður segist treysta því að viðunandi lausn finnist til framtíðar litið svo fyrirtæki geti ekki farið fram hjá reglum um erlenda fjárfestingu.
Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Fleiri fréttir „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Sjá meira