Skiptastjóri Fons vill rifta ellefu samningum Þorbjörn Þórðarson skrifar 27. janúar 2010 18:35 Pálmi Haraldsson.
Óskar Sigurðsson, skiptastjóri þrotabús Fons, eignarhaldsfélags Pálma Haraldssonar, vill rifta allls 11 samningum um lán og arðgreiðslur út úr félaginu síðustu tvö árin fyrir bankahrun. Um er að ræða samninga og greiðslur upp á samtals níu milljarða króna. Þetta kom fram á fundi með kröfuhöfum Fons í dag. Skiptastjórinn vill meðal annars rifta arðgreiðslu frá árinu 2007 upp á 4,4 milljarða króna til félagsins Matthews Holding SA í Lúxemborg, sem var í eigu Pálma og viðskiptafélaga hans Jóhannesar Kristinssonar, en fréttastofa greindi sem kunnugt er frá því um miðjan janúar síðastliðinn að verið væri að kanna grundvöll fyrir riftun á umræddri arðgreiðslu. Skiptastjóri þrotabús Fons ætlar að láta reyna á riftun 11 samninga, samtals að andvirði níu milljarða króna, sem gerðir voru síðustu tvö árin áður en Fons varð gjaldþrota. Meðal þess sem reynt verður að rifta er fjögurra milljarða króna arðgreiðsla til félags í Lúxemborg ári fyrir bankahrun. Samkvæmt lögum um um gjaldþrotaskipti eru þeir samningar riftanlegir sem fela í sér gjafagerninga eða ótilhlýðlilega ráðstöfun fjármuna og eru gerðir allt að 24 mánuðum áður en fyrirtæki leitaði fyrst eftir heimild til greiðslustöðvunar. Fons óskaði eftir gjaldþrotaskiptum í apríl á síðasta ári og kröfur í þrotabúið nema alls 40 milljörðum króna. Pálmi Haraldsson sagði í samtali við fréttastofu að hann hefði látið endurskoðendur og lögfræðinga fara sérstaklega yfir arðgreiðsluna og að engar líkur væru á því að hægt yrði að rifta henni. Arðgreiðslan hefði verið vegna hagnaðar Fons á árinu 2006 að félagið hefði verið gjaldfært þegar hún átti sér stað. Hún hefði jafnframt verið í samræmi við lög og reglur.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Sjá meira