Fjárlagahallinn hærri en Icesave Þorbjörn Þórðarson skrifar 27. janúar 2010 13:30
Fjárlagahalli ríkissjóðs árin 2009-2012 er áætlaður 350 milljarðar króna, sem er 50 milljörðum króna hærra en áætlað er að íslenska ríkið þurfi að taka á sig vegna Icesave. Opinber útgjöld á Íslandi eru nú þau hæstu meðal OECD-ríkja. Fram kom í máli Frosta Ólafssonar, hagfræðings Viðskiptaráðs, á morgunverðarfundi Samtaka atvinnulífsins í morgun að áætlaður fjárlagahalli ríkissjóðs árin 2009-2012 verði rúmlega 350 milljarðar króna, sem sé um 50 milljörðum króna hærra en vænta má að íslenska ríkið þurfi að taka á sig vegna Icesave-reikninganna, miðað við þær forsendur sem hafa verið gefnar um endurheimtur í þrotabú Landsbankans. Frosti benti hins vegar á að efnahagsáætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins myndi skapa tímabundið svigrúm því ríkið myndi njóta aðgengis að lánsfjármagni til að endurfjármagna útistandandi lán. Frosti sagði afar mikilvægt að brúa rekstrarhallann í ríkisfjármálunum. „Það er númer eitt, tvö og þrjú í allri endurreisn hagkerfisins að ná tökum á ríkisfjármálunum. Það er það sem skiptir öllu máli og þetta samtvinnast við stöðu peningamála. Þetta samtvinnast við endurreisn fjármálakerfisins og aðra þætti sem eru hinir liðirnir í endurreisninni," sagði Frosti. Hann sagði að ríkissjóður myndi ekki ná að greiða niður skuldir sínar nema með að brúa hallann í ríkisfjármálunum. Útgjöld ríkisins þau hæstu meðal aðildarríkja OECD Frosti benti á að ríkisútgjöld hefðu aukist mikið og ríkisútgjöld sem hlutfall af landsframleiðslu væru nú þau hæstu meðal aðildarríkja OECD. „Við sjáum að þróunin hefur verið ákaflega óhagfelld. Útgjöld hafa vaxið hraðar en hjá öðrum OECD ríkjum. Við vorum undir meðaltali skulda en erum nú komin vel yfir meðaltal," sagði Frosti.Þá benti Frosti á að opinberum starfsmönnum hefði fjölgað hratt undanfarið. „Vöxtur starfsmanna í opinberri stjórnsýslu hefur verið fimm sinnum hraðari en vöxtur almenns vinnuafls," sagði hann. Björn Rúnar Guðmundsson, skrifstofustjóri í efnahags- og viðskiptaráðuneytinu, kynnti áætlanir í ríkisfjármálum og sagði að huga þyrfti að samræmingu í fjármálum ríkis og sveitarfélaga. Björn Rúnar sagði að staðan í ríkisfjármálum gæti verið vel viðunandi innan skamms. Frosti Ólafsson sagði hins vegar að víða væri pottur brotinn í ríkisfjármálum og illa hefði gengið að halda áætlun. Hann sagði að þó að áætlanir hins opinbera litu vel út gæfi reynslan ekki ástæðu til að ætla að þær myndu ganga eftir. „Auðvitað vonar maður að áætlanirnar gangi eftir, en reynslan gefur ekki ástæða til að trúa að svo verði þar sem að útgjöld hafa jafnan farið verulega fram úr fjárlögum," sagði Frosti.
Mest lesið Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Viðskipti erlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Farþegar elska lopapeysur Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Fleiri fréttir Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Sjá meira