IMC á Íslandi semur við Huawei um farsímakerfi 27. janúar 2010 10:52
IMC Ísland ehf hefur undirritað samning við Huawei einn af leiðandi framleiðendum í heiminum á fjarskiptabúnaði, um kaup á annarar kynslóðar GPRS/EDGE farsímakerfi. Um er að ræða afar fullkominn og afkastamikinn búnað sem hægt er að uppfæra þannig að hann getur þjónustað alla íslenska farsímanotendur og gott betur.Í tilkynningu segir að um er að ræða fjárfestingu sem hleypur á milljónum dollara. Nýi búnaðurinn leysir af hólmi eldri símstöðvareiningu IMC Ísland. Búnaðurinn mun þjónusta viðskiptavini IMC og móðurfélagsins WorldCell víðsvegar um heim.Á sama tíma hefur IMC fjárfest í radíó aðgangskerfi sem sett verður upp á á landsbyggðinni í þeim bæjarfélögum þar sem fyrirtækið hefur tíðnileyfi. Utan þeirra svæða nýtir IMC aðgangskerfi Símans. Akureyri verður þar fyrst fyrir valinu og mun kerfið þjónusta viðskiptavini nýja farsímafyrirtækisins Alterna.Hið nýja kerfi IMC tengist dreifikerfi Símans, en félögin undirrituðu reikisamning um þjónustu hér á landi í nóvember síðastliðnum. Þær fjárfestingar sem hér eru kynntar eru liður í því að renna stoðum undir starfsemi Alterna sem mun markaðssetja farsímaþjónustu IMC fyrir Íslenskan markað.Tæknimenn IMC í samvinnu við sérfræðinga frá framleiðandanum Huawei vinna nú hörðum höndum að undirbúningi fyrir kerfisuppsetningu en búnaðurinn verður afhentur á næstu vikum.„Þetta er stórt skref í þeirri uppbyggingu sem IMC hefur ákveðið að ráðast í á Íslandi. Um er að ræða mikla fjárfestingu sem væntanlega mun skila aukinni samkeppni á íslenska farsímamarkaðnum, neytendum til hagsbóta. Við höfum eytt miklum tíma í rannsóknir og athuganir á þeim búnaði sem þörf er á til að koma af krafti inn á íslenska markaðinn. Okkar niðurstaða var að Huawei uppfyllti að öllu leiti þær kröfur sem við settum fram," segir Jeffrey K. Stark forstjóri IMC á Íslandi.„Nú er þetta að verða spennandi. Við erum nú þegar með á þriðja hundrað manns sem eru í prófunarhópi Alterna. Þær prófanir ganga vel og við erum bjartsýn á framhaldið. Þegar uppsetningu á búnaðinum frá Huawei verður lokið getum við farið á fulla ferð og boðið íslenskum farsímanotendum afar áhugaverð tilboð," segir Róbert Bragason framkvæmdastjóri Alterna.IMC WorldCell er bandarískt fyrirtæki með höfuðstöðvar í Washington DC. WorldCell veitir farsímaþjónustu í um 185 löndum og er með alls 430 reikisamninga í Evrópu, Asíu, Miðausturlöndum og Afríku. Þeir samningar eru gerðir á gundvelli tíðnileyfis IMC Íslands á 1800 tíðnibandinu og veitt var af Póst- og fjarskiptastofnun. WorldCell var stofnað árið 2000 og er móðurfélag bæði IMC Íslands og Alterna. Fram að þessu hefur fyrirtækið fyrst og fremst einbeitt sér að því að markaðssetja þjónustu erlendis en með tilkomu Alterna á íslandi verður veitt farsímaþjónusta á Íslandi undir nafni Alterna.
Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira