Viðskipti innlent

Moody's: Gengisdómur jákvæður en lánshæfi óbreytt

Matsfyrirtækið Moody´s telur nýlegan dóm Hæstaréttar um gengisbundin lán draga úr óvissu en ekki hafa áhrif á lánshæfismat ríkissjóð. Því mun Moody´s halda lánshæfiseinkunn Íslands áfram í Baa3 með neikvæðum horfum. Einkunnin er aðeins einu stigi frá svokölluðum ruslflokki.

 Fram kemur í nýlegu áliti Moody´s að dómur Hæstaréttar sé jákvætt skref í að draga úr óvissunni um hvort bankakerfið ráði við gengistryggð lán. Hinsvegar telur matsfyrirtækið að enn sé mikil óvissa til staðar hvarð varðar efnahags- og fjármálalega framtíð Ísland og því er lánshæfiseinkunnin óbreytt.

Seðlabankinn greinir frá þessu nýja áliti Moody´s á vefsíðu sinni. Í inngangi álitsins segir m.a., í lauslegri þýðingu bankans:

„Hæstiréttur Íslands hefur kveðið upp nýjan dóm tengdan gengisbundnum bílalánum. Nýji dómurinn kveður á um að vextir á gengisbundnum bílalánum, sem Hæstiréttur hafði áður dæmt ólögleg, skuli vera í samræmi við innlenda vexti sem birtir eru af Seðlabankanum.

Moody's telur að ríkisstjórnin muni brátt kynna lagafrumvarp sem skýrir frekar til hvaða annarra lána dómur Hæstaréttar eigi að taka. Dómurinn og væntanlegar frekari skýringar eru mikilvægt og jákvætt skref í átt að því að draga töluvert úr óvissu um getu bankakerfisins til að fást við yfirfærslu lána í innlenda mynt."

Moody's_Comment 20 Sep 2010.pdf










Fleiri fréttir

Sjá meira


×