Erlendir aðilar stærstu lánveitendur ríkissjóðs 12. janúar 2010 12:24
Erlendir aðilar áttu í nóvemberlok 229 milljarðar kr. í ríkisbréfum og -víxlum, sem samsvarar u.þ.b. 56% af útistandandi bréfum af þessari gerð. Nam eign þeirra í ríkisvíxlum tæplega 41 milljarði kr. og ríkisbréfaeignin 188 milljörðum kr., og þar af voru tæpir 117 milljarðar kr. í stystu ríkisbréfaflokkunum tveimur sem eru á lokagjalddaga í þessu ári. Þetta kemur fram í Markaðsupplýsingum sem Lánamál ríkisins sendu nýlega frá sér. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að eins og oft áður voru útlendingar umsvifamiklir í desemberútboði ríkisvíxla í fyrra. Keyptu þeir víxla fyrir 14,5 milljarða kr. í útboðinu, en alls voru þá seldir víxlar fyrir 21,4 milljarða kr. Þar sem erlendir aðilar höfðu aðeins keypt víxla fyrir 5 milljarða kr. í ágústútgáfunni sem var á gjalddaga í síðasta mánuði má gera ráð fyrir að víxlaeign þeirra hafi aukist nokkuð í desember og staðið nærri 50 milljarða kr. um síðustu áramót Útlendingar voru hins vegar áhugalitlir um þau ríkisbréf sem boðið var upp á í útboði síðasta mánaðar. Raunar kunna þeir að hafa staðið að hluta þeirra 15 tilboða sem bárust í RIKB11 í því útboði, en öllum tilboðum í flokkinn var hafnað. Hins vegar keyptu erlendir aðilar ekkert af þeim 23 milljörðum kr. stabba af RIKB25-bréfum sem seldur var í útboði síðasta mánaðar. Almennt hafa útlendingar reynst tregir til kaupa á lengri flokkum ríkisbréfa eins og glöggt má sjá þegar eigendaskipting bréfanna í nóvemberlok er skoðuð eftir einstökum flokkum. Þá kemur úr kafinu að erlendir aðilar áttu 85% bréfa í stysta ríkisbréfaflokknum, RIKB1003. Eftir því sem líftíminn lengist minnkar að sama skapi eignarhlutdeild útlendinga, og í lengsta ríkisbréfaflokknum, RIKB25, áttu þeir aðeins 7% útistandandi bréfa í nóvemberlok. Það vakti athygli okkar að í útgáfuáætlun Lánamála sem út kom nýverið er sleginn breyttur tónn varðandi útgáfu ríkisvíxla frá þeirri stefnu sem fylgt var á síðasta ári. Í fyrra var jafnan talað um að lækka jafnt og þétt stöðu útistandandi ríkisvíxla. Sú stefna gekk þó ekki eftir, enda voru útistandandi ríkisvíxlar fyrir tæplega 70 milljarða kr. að nafnvirði um síðustu áramót sem var aðeins lítilsháttar lækkun frá ársbyrjun. Nú er hins vegar ætlunin að hækka stöðu ríkisvíxla um 20 milljarða kr. á árinu, og má því gera ráð fyrir að útistandandi ríkisvíxlar verði í kring um 90 milljarða kr. í árslok. Má ætla að dræmar undirtektir erlendra fjárfesta við þau áform stjórnvalda að fá þá í auknum mæli til að kaupa lengri flokka ríkisbréfa sé hér áhrifaþáttur, enda þarf ríkissjóður að töluverðum hluta að reiða sig á fjármagn þessara aðila til fjármögnunar á rekstrarhalla yfirstandandi árs.
Mest lesið Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Kviku banka Viðskipti innlent Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Viðskipti innlent „Þetta er sögudrifinn söngleikur með rómantísku ívafi“ Atvinnulíf Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Viðskipti innlent Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Viðskipti innlent Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Viðskipti innlent Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Signý tekur við af Jónasi Gesti hjá Deloitte Hjallastefnan fær loksins húsnæði Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Sjá meira