Sambíóin munu leigja kvikmyndahús Egilshallar 2. mars 2010 11:59
Sambíóin / Kringlubíó og Kvikmyndahöllin ehf. hafa undirritað samning til 30 ára um leigu á húsnæði undir kvikmyndahús að Fossaleyni 1, Reykjavík (Egilshöll). Í leigusamningnum felst að Kvikmyndahöllin ehf. lýkur við byggingu kvikmyndahússins sem staðið hefur hálfklárað frá haustinu 2008. Sambíóin hafa á móti skuldbundið sig til að hefja rekstur glæsilegs fjögurra sala kvikmyndahúss eigi síðar en í desember 2010. Í tilkynningu segir að undirritun á leigusamningnum við Sambíóin sé fyrsta skrefið í að ljúka við þá umfangsmiklu og glæsilegu íþrótta- og afþreyingarmiðstöð sem fyrirhuguð er í Egilshöll. Á síðasta ári gerði Reykjavíkurborg samningum aukin afnot af aðstöðu í húsinu. Í því fólst m.a. að aðsetur íþróttafélagsins Fjölnis færðist í húsið, stórbætt var aðstaða fyrir fimleika. knattspyrnu og bardagaíþróttir auk frístundaheimilis fyrir fatlaða. Með þeim samningi var stigið stórt skref í þá átt að skapa Grafarvogsbúum frábæra aðstöðu til íþróttaiðkunar og afþreyingar. Kvikmyndahöllin ehf. er félag í eigu Regins ehf, dótturfélags Landsbankans (NBI hf,). Félagiðvar stofnað til að annast uppbyggingu og eignarhald á kvikmyndahúsinu. Auk kvikmyndahússins í Egilshöll mun Reginn ehf.eignast öll mannvirki og starfsemi sem undir Egilshöll heyrir. Reginn ehf. hyggst þó eiga Egilshöll í skamman tíma og vonir standa til að hægt verði að setjafasteignir og allan rekstur í sölu í byrjun árs 2011. Bíóið verður með fjórum sölum sem allir verða búnir fyrsta flokks aðstöðu. Rými, sætaskipan, sjónlínur og hljóðvist verða eins og best verður á kosið. Bíósalir verða á annarri hæð hússins, á jarðhæð verður miða- og sælgætissala. Nýtt stórt og glæsilegt anddyri að Egilshöll verður sameiginlegt með annarri starfsemi hússins. Samhliða framkvæmdum við bíóhús verður lokið við lóðaframkvæmdir umhverfis húsið sem og að fullgera bílastæði. Sambíóin í Egilshöll verður meðal fyrstu kvikmyndahúsa í Evrópu þar sem allir salir eru búnir Digital 3D tækni og margar aðrar nýungar verða kynntar þegar þetta fullkomna kvikmyndahús verður opnað í haust.
Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira