Ný skýrsla AGS vegvísir fyrir breytta stefnu Seðlabankans 16. febrúar 2010 12:20
Ný skýrsla frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS) um fyrirkomulag hagstjórnar kann að vísa veginn hvaða hætti peningamálastefna Seðlabanka Íslands verður endurbætt á næstu misserum. Í skýrslunni reifar aðalhagfræðingur AGS, Olivier Blanchard, ásamt fleiri háttsettum AGS-mönnum þá ágalla sem kreppa undanfarinna missera hafi leitt í ljós á hagstjórn, sér í lagi þeirri stefnu að styðjast við einfalt verðbólgumarkmið við stjórn peningamála.Þetta segir í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar kemur fram að ein helsta niðurstaða Blanchard og félaga er að seðlabankar eigi að styðjast við mun stærra vopnabúr en stýrivexti. Þannig leggja þeir til að regluverki verði beitt í auknum mæli til að styðja við markmið peningastefnunnar, og má þar nefna reglur um eigið fé, bindiskyldu og lausafjárhlutföll.Þá velta þeir upp þeirri spurningu hvort ekki sé heppilegt að styðjast við hærri miðgildi í verðbólgumarkmiðum seðlabanka en raunin hefur verið, til dæmis með því að hækka það úr 2% (sem er algengt markmið erlendis) í 4%. Má ráða af texta skýrslunnar að höfundar telji góðar líkur á því að þeir kostir sem fylgja auknu svigrúmi seðlabanka til að bregðast við áföllum vegi þyngra en gallarnir sem fylgja slíkri breytingu, en sem kunnugt er lækkuðu flestir stærstu seðlabanka heims vexti niður að 0% eftir að kreppan skall á. Höfðu þeir ekki frekara svigrúm til að lækka raunvexti.Loks mæla AGS-menn með því að seðlabankar í litlum, opnum hagkerfum viðurkenni mikilvægi gengisstöðugleika fyrir hagstjórn og beiti inngripum á gjaldeyrismarkaði og stýringu gjaldeyrisforða með markvissum hætti.Ofangreindar niðurstöður eru þvert á stefnu Seðlabanka Íslands lengst af undangengnum áratug. Þar á bæ hefur því löngum verið haldið fram að þar sem bankinn hefði eitt meginmarkmið, lága og stöðuga verðbólgu, ætti í stórum dráttum að beita einu stýritæki, stýrivöxtum bankans, til hagstjórnar. Öðrum tækjum á borð við bindiskyldu og inngrip á gjaldeyrismarkaði var löngum hafnað þrátt fyrir að beiting slíkra stjórntækja hafi gefist allvel víða erlendis við áþekkar aðstæður og hér ríktu.Því skal þó haldið til haga að í áliti til forsætisráðherra í fyrrasumar lagði bankinn til að honum yrðu fengin í hendur fleiri tól af þessu tagi til þess að styðja við vaxtastefnu hans. Þá hafa sérfræðingar bankans jafnan tekið afar dræmt í hugmyndir um að hækka miðgildi verðbólgumarkmiðsins, nú síðast í framangreindu áliti.Hin nýja skýrsla AGS er sérstaklega athyglisvert að til stendur að endurskoða peningastefnu Seðlabankans á næstunni. Í skýrslunni sem fylgdi fyrstu endurskoðun efnahagsáætlunar sjóðsins og íslenskra stjórnvalda var það tekið fram að þegar lengra liði á áætlunina væri nauðsynlegt að huga að framtíðar peningastefnu Seðlabankans. Þar sem AGS mun vafalaust koma að því verki, a.m.k. í ráðgjafarhlutverki, má ætla að hugmyndir líkar þeim sem Blanchard og félagar viðruðu í skýrslu sinni muni verða veigamiklar í þeirri vinnu.Í því sambandi má einnig nefna að núverandi Seðlabankastjóri, Már Guðmundsson, hefur undanfarið í ræðu og riti reifað hugmyndir sem í mörgu eru áþekkar hugmyndum AGS-manna, sér í lagi hvað varðar hlutverk inngripa og beitingu regluverks, að því er segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Lagarde hættir snemma sem seðlabankastjóri Viðskipti erlent Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira