Tæting og förgun tóbaks frá Póllandi stöðvuð 16. febrúar 2010 11:56
Tæting og förgun tóbaks frá Póllandi hefur verið stöðvuð að beiðni Umhverfisstofnunar. Umhverfisstofnun mun hafa samband við yfirvöld í Póllandi vegna málsins og í framhaldinu taka frekari ákvarðanir í málinu, þ.m.t. um mögulega endursendingu. Í tilkynningu segir að í Morgunblaðinu þann 11. feb. sl. var sagt frá því að nú stæði yfir tæting og förgun á tóbaki sem flutt hefði verið til landsins frá Póllandi. Í fréttinni kom fram að aldrei hefði staðið til að selja tóbakið hér á landi því hingað hefði það verið flutt í þeim eina tilgangi að farga því. Umhverfisstofnun hóf athugun málsins þar sem óheimilt er að flytja úrgang til förgunar hér á landi nema fyrir liggi tilskilin leyfi. Meginreglan varðandi förgun úrgangs er sú að förgun fari fram í því landi sem úrgangurinn fellur til og byggir hún meðal annars á því að koma í veg fyrir að fátæk ríki verði að förgunarstöðum fyrir auðug ríki. Óheimilt er að flytja úrgang milli landa til förgunar nema að fengnum tilskildum leyfum. Heimilt er að flytja endurvinnanleg efni á milli landa til endurvinnslu. Við athugun Umhverfisstofnunar fékkst staðfesting hjá Rolf Johansen & Co ehf., sem stóð að þessum innflutningi, að tóbakið hefði verið flutt til landsins í þeim eina tilgangi að farga því. Umhverfisstofnun telur því ljóst að áður en ráðist var í innflutninginn hafi legið fyrir að um úrgang væri að ræða, en ekki vöru, og því hafi verið skylt að tilkynna innflutninginn til stofnunarinnar og óska eftir leyfi hennar. Þar sem stofnuninni barst ekki tilkynning um innflutninginn og veitti ekki leyfi fyrir honum telur stofnunin að hér hafi verið um að ræða ólögmætan flutning úrgangs til landsins.
Mest lesið Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Farþegar elska lopapeysur Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Tollar kísilframleiðslu í Kína Viðskipti erlent Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Viðskipti innlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Innkalla te sem innihélt ál Neytendur Farþegum fækkaði milli ára Viðskipti innlent Fleiri fréttir Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Sjá meira