TULIP í Danmörku velur Plastprent sem birgja 16. febrúar 2010 12:10
Elsta vörumerki Danmerkur og eitt af stærri vörumerkjum í Evrópu á neytenda- og veitingamarkaði, TULIP, hefur valið Plastprent sem birgja. Greint er frá þessu á vefsíðu Samtaka iðnaðarins.„Við höfum verið að vinna í þessum samningum í tvö ár," segir Ólafur Steinarsson framkvæmdastjóri Plastprents hf. „Í síðustu viku fór fyrsta framleiðslan í okkar umbúðir og gekk allt eins og í sögu. Þetta er samningur til 2012 sem var undirritaður nýverið og er verðmæti hans á annað hundrað milljónir króna. Heildarmatvælaframleiðsla TULIP á ársgrundvelli er um 171.000 tonn þannig að ef vel gengur horfum við fram á frekari vöxt fyrirtækisins sem birgi innan þessa stóra félags."Ólafur segir að það sé hægara sagt en gert að komast inn hjá stórum matvælaframleiðendum í Evrópu en Plastprent hóf viðræður við TULIP í Danmörku fyrir um tveimur árum síðan.„Þá þróuðum við filmu sem við sendum í prufukeyrslu og gekk sérlega vel. Í framhaldi af því tókum við þátt í stóru útboði og náðum inn nokkrum vörulínum í samkeppni við aðra aðila. Þá var gott að vera búinn að komast inn sem viðurkenndur birgi," segir Ólafur. „Eins og við þekkjum, þá standa Danir vel að vígi í matvælaframleiðslu, ekki síst í vörumerkjastjórnun og fyrir okkur hefur það mikla þýðingu að komast inn hjá TULIP.TULIP hefur orðið tákn fyrir hágæðakjötframleiðslu og er þekkt fyrir útflutning á gæðamatvælum um alla Evrópu, en fyrirtækið selur einnig til Rússlands og á Japansmarkað. TULIP er með sterk eigin vörumerki eins og TULIP, Majesty, Steff Holberg, GØL, DAK, Oldenburger og Ugglarp.„Okkar samningur er um vörur fyrir veitingamarkaðinn en í heildina stendur þessi markaður fyrir 23% af heildarframleiðslu TULIP. Þessir viðskiptavinir gera sérstakar kröfur um upplýsingaskyldu, pökkunarstærðir og hagkvæmar umbúðir," segir Ólafur.
Mest lesið U-beygja Metro sem komst í gegnum eftirlit án nokkurra athugasemda Neytendur Heimavöllur Aftureldingar kenndur við rafmyntafyrirtæki Viðskipti innlent Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Viðskipti innlent Hörður og Svala endurvekja Macland Viðskipti innlent Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári Viðskipti innlent Rúmgóður ferðafélagi með sportlegu yfirbragði Samstarf Litla kaffistofan verði nýtt fyrir norðurljósaferðir Viðskipti innlent Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Viðskipti innlent Eftirlitið veður í Veðurstofuna Viðskipti innlent Arnar og Aron Elí til Reita Viðskipti innlent Fleiri fréttir Heimavöllur Aftureldingar kenndur við rafmyntafyrirtæki Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Hörður og Svala endurvekja Macland Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári Litla kaffistofan verði nýtt fyrir norðurljósaferðir Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Arnar og Aron Elí til Reita Eftirlitið veður í Veðurstofuna Eldgosin við Grindavík höfðu mikil áhrif á neikvæða afkomu hins opinbera Leitin skili tekjum í ríkissjóð þó það finnist ekki olía Langþreytt á fasteignakeðjum sem slitna og ætlar aldrei aftur að flytja Vara við díoxíni í Landnámseggjum Slá milljarða lán til að fjármagna jarð- og sæstrengi Laganemar bjóða leigjendum áfram upp á fría ráðgjöf Heiður Anna nýr framkvæmdastjóri FS Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Landmarks fasteignamiðlunar Olíuleit geti skipt sköpum fyrir framtíð þjóðarinnar Edda Hermanns nýr forstjóri Lyfja og heilsu Djúpstæð vonbrigði þegar margra eigna keðjur slitna Andri Sævar og Svava til Daga Tveir nýir vörumerkjastjórar til Ölgerðarinnar Tekur við sem framkvæmdastjóri verkfræðisviðs Coripharma Ráðin framkvæmdastjóri markaðsstofu Travel Connect Birgir til Banana Spyr hvort tilefni sé til ánægju með sölu á Íslandsbanka Bætir við sig nýjum áfangastað á Ítalíu Loka verslun Útilífs í Smáralind Meðalsölutími fasteigna hundrað dagar Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Play sé ekki að fara á hausinn Sjá meira