Viðskipti innlent

Háar sektir í hvítflibbabrotum eru sjaldan greiddar

Ríkisendurskoðun segir að undanfarin ár hefur þróunin orðið sú að vararefsing hárra sekta vegna svokallaðra hvítflibbabrota er nær ávallt afplánuð með samfélagsþjónustu.
Ríkisendurskoðun segir að undanfarin ár hefur þróunin orðið sú að vararefsing hárra sekta vegna svokallaðra hvítflibbabrota er nær ávallt afplánuð með samfélagsþjónustu.
Á tímabilinu júlí 2008 til mars 2010 bárust Fangelsismálastofnun mál 44 einstaklinga sem dæmdir höfðu verið til að greiða sektir sem voru 9 milljónir kr. eða hærri. Samtals nam fjárhæð þessara sekta liðlega 1,3 milljarði kr. Samkvæmt upplýsingum sem Ríkisendurskoðun hefur aflað eru líkur á að einungis lítill hluti þeirra verði greiddur.

Þetta kemur fram í nýrri frétt á vefsíðu Ríkisendurskoðunnar sem sett er þar inn vegna svars dómsmála- og mannréttindaráðherra við fyrirspurn á Alþingi um fésektir og fjölmiðlaumræðu í kjölfar þess.

Ríkisendurskoðun segir að undanfarin ár hefur þróunin orðið sú að vararefsing hárra sekta vegna svokallaðra hvítflibbabrota er nær ávallt afplánuð með samfélagsþjónustu. Í skýrslu Ríkisendurskoðunnar Eftirlit með innheimtu sekta og sakarkostnaðar sem kom út í júní í fyrra kemur þannig fram að um 81% sekta fyrir skattalagabrot sem voru 8 milljónir kr. eða hærri á tímabilinu 2000-2006 voru gerð upp með þessum hætti.

Einnig er bent á að bið eftir því að afplána vararefsingu sé löng vegna skorts á rými í fangelsum landsins. Að mati Ríkisendurskoðunar er hætta á því að fullnusta refsinga hér á landi sé um of farin að ráðast af aðstöðu eða aðstöðuleysi Fangelsismálastofnunar, í stað alvarleika brota og þeirra varnaðaráhrifa sem refsingum er ætlað að hafa.

Þá telur Ríkisendurskoðun að dómsmála- og mannréttindaráðuneytið eigi að láta gera úttekt á kostum þess og göllum að dómstólar dæmi brotamenn til samfélagsþjónustu í stað Fangelsismálastofnunar, enda er það dómstóla að ákveða refsingar. Á það hefur verið bent að samfélagsþjónusta sé í eðli sínu refsing þótt hún sé í íslenskum lögum skilgreind sem svokallað fullnustuúrræði.

Menn sem dæmdir hafa verið til sektar eiga ekki rétt á að afplána hana með samfélagsþjónustu geti þeir greitt. Úrræði yfirvalda til að kanna fjárhag sektarþola eru hins vegar takmörkuð. Sterkur grunur leikur á að fyrir hafi komið að menn sem gátu greitt sekt hafi fengið að afplána hana með samfélagsþjónustu.

Í fyrrnefndri skýrslu Ríkisendurskoðunar um eftirlit með innheimtu sekta og sakarkostnaðar kemur fram að efla þurfi úrræði yfirvalda til að kanna fjárhagsstöðu sektarþola. Einnig þurfi að veita þeim öflugri lagaleg úrræði til þess að hindra að eignum eða fjármunum sé skotið undan þegar sakfelling liggur fyrir og háar sektir blasa við.

Loks var bent á að athuga þyrfti hvort heimila ætti kyrrsetningu eigna á rannsóknarstigi þegar veruleg hætta er á undanskotum og sekt þykir nokkuð óyggjandi. Við þessari ábendingu var brugðist með setningu þar sem kyrrsetning eigna er m.a. heimiluð.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×