Háar sektir í hvítflibbabrotum eru sjaldan greiddar 10. maí 2010 10:58 Ríkisendurskoðun segir að undanfarin ár hefur þróunin orðið sú að vararefsing hárra sekta vegna svokallaðra hvítflibbabrota er nær ávallt afplánuð með samfélagsþjónustu.
Á tímabilinu júlí 2008 til mars 2010 bárust Fangelsismálastofnun mál 44 einstaklinga sem dæmdir höfðu verið til að greiða sektir sem voru 9 milljónir kr. eða hærri. Samtals nam fjárhæð þessara sekta liðlega 1,3 milljarði kr. Samkvæmt upplýsingum sem Ríkisendurskoðun hefur aflað eru líkur á að einungis lítill hluti þeirra verði greiddur.Þetta kemur fram í nýrri frétt á vefsíðu Ríkisendurskoðunnar sem sett er þar inn vegna svars dómsmála- og mannréttindaráðherra við fyrirspurn á Alþingi um fésektir og fjölmiðlaumræðu í kjölfar þess.Ríkisendurskoðun segir að undanfarin ár hefur þróunin orðið sú að vararefsing hárra sekta vegna svokallaðra hvítflibbabrota er nær ávallt afplánuð með samfélagsþjónustu. Í skýrslu Ríkisendurskoðunnar Eftirlit með innheimtu sekta og sakarkostnaðar sem kom út í júní í fyrra kemur þannig fram að um 81% sekta fyrir skattalagabrot sem voru 8 milljónir kr. eða hærri á tímabilinu 2000-2006 voru gerð upp með þessum hætti.Einnig er bent á að bið eftir því að afplána vararefsingu sé löng vegna skorts á rými í fangelsum landsins. Að mati Ríkisendurskoðunar er hætta á því að fullnusta refsinga hér á landi sé um of farin að ráðast af aðstöðu eða aðstöðuleysi Fangelsismálastofnunar, í stað alvarleika brota og þeirra varnaðaráhrifa sem refsingum er ætlað að hafa.Þá telur Ríkisendurskoðun að dómsmála- og mannréttindaráðuneytið eigi að láta gera úttekt á kostum þess og göllum að dómstólar dæmi brotamenn til samfélagsþjónustu í stað Fangelsismálastofnunar, enda er það dómstóla að ákveða refsingar. Á það hefur verið bent að samfélagsþjónusta sé í eðli sínu refsing þótt hún sé í íslenskum lögum skilgreind sem svokallað fullnustuúrræði.Menn sem dæmdir hafa verið til sektar eiga ekki rétt á að afplána hana með samfélagsþjónustu geti þeir greitt. Úrræði yfirvalda til að kanna fjárhag sektarþola eru hins vegar takmörkuð. Sterkur grunur leikur á að fyrir hafi komið að menn sem gátu greitt sekt hafi fengið að afplána hana með samfélagsþjónustu.Í fyrrnefndri skýrslu Ríkisendurskoðunar um eftirlit með innheimtu sekta og sakarkostnaðar kemur fram að efla þurfi úrræði yfirvalda til að kanna fjárhagsstöðu sektarþola. Einnig þurfi að veita þeim öflugri lagaleg úrræði til þess að hindra að eignum eða fjármunum sé skotið undan þegar sakfelling liggur fyrir og háar sektir blasa við.Loks var bent á að athuga þyrfti hvort heimila ætti kyrrsetningu eigna á rannsóknarstigi þegar veruleg hætta er á undanskotum og sekt þykir nokkuð óyggjandi. Við þessari ábendingu var brugðist með setningu þar sem kyrrsetning eigna er m.a. heimiluð.
Mest lesið Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Sjá meira