Askar Capital tapaði 12,4 milljörðum í fyrra 15. maí 2009 16:43
Rekstur Askar Capital var mjög erfiður á árinu 2008 og nam tap af starfseminni 12,4 milljörðum króna eftir skatta. Í kjölfar alþjóðlegrar fjármálakreppu og bankahruns á Íslandi hefur orðið mikið verðfall á eignum bankans og seljanleiki takmarkast verulega. Í tilkynningu segir að sem afleiðing þessa hefur bankinn þurft að afskrifa háar fjárhæðir sem leitt hefur til rýrnunar eigin fjár. Þannig námu varúðarniðurfærslur vegna lána og viðskiptakrafna 6,5 milljörðum króna og afskrift viðskiptavildar 2,9 milljörðum króna. Í samstæðu Askar Capital er einnig eignaleigufyrirtækið Avant sem einkum fjármagnar bílaviðskipti einstaklinga. Umhverfið á bílalánamarkaði gerbreyttist á árinu 2008, eftirspurn snarminnkaði og möguleikar á nýrri fjármögnun lokuðust. Eignir Avant námu 30,5 milljörðum króna á árinu og nam tap ársins 0,2 milljörðum króna. Varúðarniðurfærslur vegna verðfalls eigna hafa leitt til þess að eiginfjárhlutfall samstæðunnar hefur farið undir lögbundið lágmark. Nánari skoðun á eigna- og útlánasafni í mars og apríl leiddu til frekari afskrifta í ársreikningi ársins 2008 og er eiginfjárhlutfall samstæðunnar því neikvætt í lok árs 2008. Fjármálaeftirlitið veitti félaginu frest til 15. maí til að koma eiginfjárhlutfalli samstæðunnar í lögbundið horf. Allir óveðtryggðir lánveitendur móðurfélags Askar hafa samþykkt tillögur félagsins um fjárhagslega endurskipulagningu. Þessir kröfuhafar munu taka yfir félagið á hluthafafundi sem haldinn verður í lok maí. Á þeim fundi verður jafnframt lögð fram tillaga stjórnar félagins um að færa hlutafé núverandi hluthafa niður að fullu. Núverandi hluthafar Askar Capital eru Moderna Finance AB, sem á 80,8% hlut, og 15 aðrir hluthafar sem samtals eiga 19,2% hlut. Nýir hluthafar verða, nái tillagan fram að ganga á hluthafafundi, Glitnir banki með um 53% hlut, Saga Capital með um 18% hlut og 10 aðrir hluthafar með samtals um 29% hlut.
Mest lesið „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Neytendur Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Sjá meira