Reiknar með óbreyttum stýrivöxtum í ágúst 30. júlí 2009 11:16
Greining Íslandsbanka reiknar með að peningastefnunefnd Seðlabankans ákveði að halda vöxtum sínum óbreyttum í 12% á næsta vaxtaákvörðunardegi bankans sem verður þann 13. ágúst næstkomandi. Í Morgunkorni greiningarinnar segir að hið sama eigi við um innlánsvexti bankans sem nú standa í 9,5%. Þrátt fyrir að nokkuð hafi miðað áfram í efnahagsáætlun Alþjóðagjaldeyrisjóðsins og stjórnvalda frá síðustu vaxtaákvörðun í byrjun júlí sem ætti að öllu jöfnu að gefa tilefni til slökunar er útlit fyrir að þróun á gengi krónunnar og verðbólgu verði enn óviðunandi að mati peningastefnunefndarinnar þegar hún tekur ákvörðun í ágúst. Í fundargerð peningastefnunefndar frá síðustu vaxtaákvörðun kemur það skýrt fram að styrking krónu frá því gildi sem hún stóð í við síðustu vaxtaákvörðun væri forsenda vaxtalækkunar. Gengi krónunnar hefur nánast staðið í stað frá í byrjun júlí og ólíklegt er að það muni hækka fram að vaxtaákvörðunardegi bankans. Þessu til viðbótar er ljóst að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn mælir ekki með frekari vaxtalækkunum en reynslan hefur sýnt að ráðgjöf sjóðsins nýtur töluverðs hljómgrunns innan peningastefnunefndar. Loks má nefna að fram hefur komið að peningastefnunefndin vill að vextir verði enn háir þegar farið verði í að afnema gjaldeyrishöftin en fyrirhugað er að hefja afnám þeirra seint á þessu ári. Greiningin reiknar með því að stýrivextir Seðlabankans haldist óbreyttir fram á 2. ársfjórðung næsta árs. Fyrirhugað afnám gjaldeyrishafta ásamt væntanlegri þróun krónunnar mun að mati greiningarinnar kalla á óbreytta stýrivexti fram að þeim tíma. Ekki er hægt að útiloka að peningastefnunefnd bankans ákveði að hækka vexti bankans á þessum tíma. Að því tilskyldu að framvindan í áætlun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og stjórnvalda verði líkt og að er stefnt ættu að skapast forsendur fyrir hækkun krónunnar á næsta ári og að samhliða þeirri þróun verði slakað á aðhaldinu í peningamálum. Spáir greiningin því að stýrivextir bankans verði komnir í 7,5% í lok næsta árs eða 4,5 prósentustigum lægri en þeir eru nú. Um mitt ár 2011 verða stýrivextir Seðlabankans komnir niður í 6% að okkar mati.
Mest lesið „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Viðskipti innlent Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Viðskipti innlent Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes Viðskipti innlent Auglýstu tilboð of títt og fá milljón í sekt Neytendur Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Viðskipti innlent Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Viðskipti innlent Sá elsti í heiðurshópnum níutíu ára Atvinnulíf Brú Talent kaupir Geko Consulting Viðskipti innlent Ætlar að endurreisa Niceair Viðskipti innlent Hluthafar Íslandsbanka krefjast stjórnarkjörs Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tinna nýr framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs hjá Innnes „Enginn í Lottu er á mannsæmandi launum“ Tekur við þjálfun kokkalandsliðsins Brú Talent kaupir Geko Consulting Halli hins opinbera minnkaði um 39 milljarða Spá aukinni verðbólgu um jólin Skatturinn endurgreiði áfram ofgreiddan skatt Bein útsending: Skattspor ferðaþjónustunnar Ýmsar forsendur Hæstaréttar um skilmálann jákvæðar „Ég tel að þessi dómur hafi takmarkað fordæmisgildi“ Skilmálarnir skýrir og Arion banki sýknaður í vaxtamálinu Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Ætlar að endurreisa Niceair Steinþór aftur sviðsstjóri Orku hjá Eflu DiBiasio og Beaudry til Genis Greiða tryggðar pakkaferðir úr Ferðatryggingasjóði eftir áramót Vaxtamálið: Niðurstaða um verðtryggðu lánin á morgun Kristín og Birta ráðnar til Origo Gengi Skaga tekur dýfu eftir tilkynningu Íslandsbanka Enn að rannsaka samráð í sorphirðu Hluthafar Íslandsbanka krefjast stjórnarkjörs Ferðamálastofa fellir úr gildi starfsleyfi Eagle golfferða Fjöldi erlendra farþega stendur í stað en Íslendingum fækkar Hulda nýr formaður Tækni- og hugverkaráðs SI Eldi verður eitt stærsta félag sinnar tegundar í heiminum Stærsti nóvembermánuður í sögu Icelandair Linda fer ekki fram til áframhaldandi stjórnarsetu Til Borealis Data Center eftir 22 ár hjá Össuri „Verðum að vona að þessi þróun haldi áfram“ Kaffi Ó-le opið á ný Sjá meira