SA: Íhuga að stefna ráðherra fyrir dómstóla 1. október 2009 13:49
Samtök atvinnulífsins (SA) íhuga nú að stefna Svandísi Svavarsdóttur umhverfisráðherra fyrir dómstóla vegna ákvörðunar hennar um að fella úr gildi ákvörðun Skipulagsstofnunar um suðvesturlínu. Í tilkynningu á vefsíðu SA segir að Samtök atvinnulífsins skora á umhverfisráðherra að afturkalla ólögmætan úrskurð umhverfisráðuneytisins frá 29. september um að fella úr gildi ákvörðun Skipulagsstofnunar frá 25. mars 2009, um að ekki skuli fara fram sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar Suðvesturlínur, styrkingar raforkuflutningskerfis á Suðvesturlandi, og öðrum framkvæmdum sem tengjast álveri í Helguvík. Að öðrum kosti munu samtökin bera fram kvörtun við umboðsmann Alþingis og/eða leita leiða til þess að fá úrskurðinum hnekkt fyrir dómstólum. Í bréfi Vilhjálms Egilssonar, framkvæmdastjóri SA, til Svandísar Svavarsdóttur, umhverfisráðherra, segir að Samtök atvinnulífsins telji fyrrgreindan úrskurð umhverfisráðuneytisins ólögmætan af þeirri ástæðu að hann var kveðinn upp rúmum þremur mánuðum eftir að tilskilinn tímafrestur var útrunninn. Þar að auki hafi reglur stjórnsýslulaga nr. 37/1993 um málsmeðferð og andmælarétt ekki verið virtar við meðferð málsins. Í bréfinu minna Samtök atvinnulífsins á aðild ríkisstjórnarinnar, og þar með umhverfisráðherra, að stöðugleikasáttmálanum sem undirritaður var 25. júní 2009, þar sem segir: „Ríkisstjórnin mun greiða götu þegar ákveðinna stórframkvæmda sbr. þjóðhagsáætlun, s.s. framkvæmda vegna álvera í Helguvík og Straumsvík. Undirbúningsvinnu verði hraðað vegna áforma sem tengjast fjárfestingu í meðalstórum iðnaðarkostum, s.s. gagnaverum og kísilflöguframleiðslu. Kappkostað verður að engar hindranir verði af hálfu stjórnvalda í vegi slíkra framkvæmda eftir 1. nóvember 2009." „Úrskurður ráðherra gengur í berhögg við þessa yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og setur sáttmálann í uppnám þar sem ljóst er að málið tefst svo mörgum mánuðum skiptir," segir Vilhjálmur Egilsson í bréfinu.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira