Álbirgðir heimsins í sögulegu hámarki 17. apríl 2009 04:00 Alcoa Fjarðaáls Á þessu ári er útlit fyrir fimm til tíu prósenta samdrátt eftirspurnar eftir áli í heiminum samkvæmt nýrri umfjöllun IFS Greiningar. Mynd/Hreinn magnússon
Dræm eftirspurn eftir áli hefur orðið til þess að birgðir hlaðast upp í heiminum. Álfyrirtæki bregðast við með því að draga úr framleiðslu. Flest álver eru rekin með tapi. Álbirgðir aukast enn í heiminum, að því er fram kemur í nýrri greiningu IFG Greiningar sem út kom í gær. „Birgðir hjá London Metal Exchange hafa aukist um nærri 50 prósent bara á þessu ári. Það skýrist af mjög dræmri eftirspurn,“ segir í skýrslu greiningarfyrirtækisins. Ekki er útlit fyrir að eftirspurnin aukist fyrr en í fyrsta lagi undir lok þessa árs, segir þar jafnframt. „Til að birgðasöfnun minnki er því ljóst að framleiðendur þurfa enn að draga úr framleiðslu en talið er að álframleiðendur hafi dregið framleiðslu saman um 15 prósent.“ Áætlað er að í heiminum séu til birgðir af áli sem nægi til tveggja mánaða framleiðslu. Líkur eru taldar á þetta sé varlegt mat því birgðir endist lengur þegar eftirspurn er jafnlítil og nú. „Erlendir greinendur hafa nefnt að allt að 100 daga birgðir séu nú til, en við teljum að sú áætlun sé í hærri kantinum,“ segir í greiningunni. Þá er bent á að kínversk stjórnvöld hafi undanfarið keypt ál frá innlendum framleiðendum langt yfir markaðsverði og halda þar með framleiðslu uppi, en miklar birgðir muni hins vegar halda aftur af mögulegum verðhækkunum á næstu mánuðum. Vitnað er til talna frá ráðgjafafyrirtækinu CRU um að meðalframleiðslukostnaður áls sé um 1.450 Bandaríkjadalir hvert tonn og því ljóst að stór hluti álvera sé rekinn með tapi. „Reyndar hafa erlendir greinendur talað um að allt að 75 prósent álvera í heiminum séu rekin með tapi miðað við núverandi verð.“ IFS Greining segir álverð nú undir verðinu um aldamótin, á meðan að verð á hráolíu hafi tvöfaldast.
Mest lesið Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Atvinnulíf Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Viðskipti innlent Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Viðskipti innlent Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Viðskipti erlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Sjá meira