Viðskipti innlent

Hver Íslendingur ver 42. 000 króna í jólainnkaup

Gert er ráð fyrir að jólaverslunin verði óbreytt frá síðasta ári að magni til en vegna verðhækkana verði veltan 8% meiri í krónum talið. Hver Íslendingur mun að jafnaði verja 42.000 kr. til jólainnkaupa.

Þetta kemur fram í árlegri spá Rannsóknaseturs verslunarinnar við Háskólanum á Bifröst um jólaverslunina. Í fyrra minnkaði jólaverslunin um 18,3% frá árinu áður á föstu verðlagi. Það var verulegur samdráttur því árlegur vöxtur jólaverslunarinnar hafði verið að meðaltali 7,3% í fjögur ár þar á undan.

Í skýrslu Rannsóknaseturs verslunarinnar um jólaverslunina kemur einnig fram að áætlað sé að velta í smásöluverslun sem rekja má til jólanna nemi um 13,4 milljörðum króna sem jafngildir því að hver Íslendingur verji að jafnaði næstum 42.000 kr. til jólainnkaupa. Í fyrra var þessi upphæð 38.600 kr.

Í tilkynningu um málið segir að Rannsóknasetrið geri árlega könnun meðal almennings um hvernig þeir haga jólainnkaupunum. Meðal niðurstaðna í þeirri könnun kemur fram að fólk byrjar fyrr á jólainnkaupunum en áður var og dreifir þeim jafnvel á allt árið.

Algengast er að hver fullorðinn verji um 25 - 75 þús. kr. til jólagjafakaupa. Mun færri en áður segjast kaupa jólagjafir fyrir meira en 100 þús. kr. Þá kemur í ljós að fleiri kaupa jólagjafir erlendis en í fyrra og fleiri versla á netinu fyrir þessi jól en áður hefur verið.

Jólagjöfin í ár er: „jákvæð upplifun". Þetta er niðurstaða dómnefndar sem hafði fengið hátt á annað hundrað tillögur að „jólagjöfinni í ár". Þessi gjöf er talin falla vel að þeim tíðaranda sem nú ríkir. Í þessu vali felst að jólagjöfin veiti þeim sem fær gjöfina jákvæða upplifun og verðið rúmist innan fjárhags gefandans.

Í rökstuðningi dómnefndar segir ma: „Þannig gjafir gefa þeir sem láta ímyndunaraflið ráða för og velja eftir áhugasviði þess sem fær gjöfina. Dansnámskeið fyrir afa, flúðasigling fyrir frænku, miði á leiksýningu fyrir besta vininn eða iljanudd fyrir eiginmanninn. - Möguleikarnir eru óteljandi og takmarkast bara af hugarfluginu." Jólagjöfin í ár getur þannig bæði verið vara eða þjónusta.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×