Vita ekki hvort bankinn stöðvaði millifærslu Kaupþings 21. október 2009 18:30
Seðlabanki Íslands vísar til væntanlegrar skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis, um hvort bankinn hafi komið í veg fyrir að Kaupþing á Íslandi sendi 150 milljónir punda til dótturfélags síns, Singer&Friedlander, daginn fyrir fall Kaupþings. Engar upplýsingar séu til um þetta í bankanum. Fram kemur í dómi, í máli Kaupings gegn breska fjármálaráðuneytinu að í byrjun október í fyrra, hafi mikið verið reynt að útvega lausafé til handa Singer og Friedlander, dótturfélagi Kaupþings í Bretlandi. Jafnframt segir að ekki sé samræmi í frásögnum vitna; en Sheila Nicoll, yfirmaður í breska fjármálaeftirlitnu, bar fyrir dómi, að 5. október í fyrra, hafi fé flætt út úr Singer og Friedlander bankanum. Kaupþing hafi sannfært breska Fjármálaeftirlitið um að það myndi útvega breska bankanum sínum, 186 milljónir punda. 7. október, daginn fyrir fall Kaupþings, hafi 36 milljónir punda borist, en 150 milljónir, eða sem nemur ríflega þrjátíu milljörðum króna á gengi dagsins í dag, hafi ekki skilað sér; sá sé skilningur breska fjármálaeftirlitsins, að Seðlabanki Íslands hefði komið í veg fyrir færsluna. En Sigurður Einarsson, þáverandi stjórnarformaður Kaupþings, sagði í yfirlýsingu að „Í kjölfar þess að Kaupthing Singer & Friedlander var sett í greiðslustöðvun vísuðu lánadrottnar Kaupþings banka hf. þá til þess að greiðslustöðvun dótturfyrirtækis væri vanefnd samkvæmt ákvæðum lánasamninga móðurfélagsins og því ígildi greiðslufalls. ..." Á þessum tíma hafði Kaupþing fengið þrautarvaralán hjá Seðlabanka Íslands; að upphæð fimm hundruð milljónir evra. Ekki er enn ljóst að fullu hvert þeir peningar fóru. Seðlabanki Íslands segir í svari við fyrirspurn fréttastofu að engar upplýsingar liggi fyrir í seðlabankanum um málið. Að öðru leyti sé vísað til upplýsinga sem komi fram í væntanlegri skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Fram hefur komið að skrifleg gögn skortir um margt sem átti sér stað hina örlagaríku daga í fyrrahaust. Þá hefur Davíð Oddsson sem var seðlabankastjóri á þessum tíma, sagt í viðtali að rannsóknarnefndin hefði rætt við sig klukkustundum saman.
Mest lesið Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Viðskipti innlent Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Atvinnulíf Hagkvæmt að ráða krabbameinssjúklinga í vinnu Atvinnulíf Nýr forstjóri Deloitte fundinn Viðskipti innlent Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Viðskipti innlent Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Viðskipti innlent Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Viðskipti innlent Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Viðskipti innlent Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Viðskipti innlent Fleiri fréttir Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Sjá meira