Margt á huldu um eignasölu Saxbyggs við hrun 21. desember 2009 00:01 Fasteignafélag í eigu Byrs, Saxbyggs og fleiri aðila sá mikla hagnaðarvon í Lundúnum. Raunin varð önnur.Fréttablaðið/AP
Einar Gautur Steingrímsson, skiptastjóri fjárfestingarfélagsins Saxbyggs, skoðar nú hvort sanngjarnt verð hafi verið greitt fyrir rúman tug fasteignaverkefna úr búi félagsins í Lundúnum og í Berlín í kringum hrun bankanna í fyrra. Saxbygg hóf að vinna að fasteignatengdum verkefnum í nágrenni Lundúna í kringum 2006 og stofnaði fasteignafélagið Shelley Oak þar í landi í byrjun árs 2007. Fasteignaverð þar hafði hækkað mikið og veðjað var á að það myndi hækka meir eftir að Lundúnir höfðu vinninginn í samkeppni um Ólympíuleikana 2012. Byr átti um 35 prósent í félaginu. Saxbygg og Árni Helgason, viðskiptafélagi Jóns Þorsteins Jónssonar, stjórnarformanns Byrs, áttu hvor sín sextán prósentin. Erlendir aðilar áttu fjórðungshlut. Halla tók undan fæti á breskum fasteignamarkaði á seinni hluta 2007 og keypti Byr hluta af eignarhlut Saxbyggs í breska félaginu. Það kom illa við sparisjóðinn og skrifast stór hluti af fjárhagsvandræðum hans á þessi verkefni. Samkvæmt skýrslu endurskoðendafyrirtækisins PricewaterhouseCoopers frá í sumar tapaði sparisjóðurinn samtals 2,5 milljörðum króna á fasteignaverkefnum í Bretlandi. Stjórn sparisjóðsins hefur frá í vor beðið þess að ríkið leggi honum til tæplega ellefu milljarða króna eiginfjárframlag til að gera hann rekstrarhæfan á ný. Fasteignaverkefni Saxbygg í Lundúnum og í Berlín voru seld erlendum aðilum í júlí og október í fyrra og er unnið að því að ljúka þeim. Hvorki liggur fyrir hverjir keyptu þau ytra né hvort fyrri eigendur Saxbyggs tengist þeim með einhverjum hætti. Þá er óvíst með kaupverðið. Einar Gautur segir margt óljóst um viðskiptin og verið sé að skoða þau í þaula. Björn Ingi Sveinsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Saxbyggs, vinnur við verkefnin erlendis. Hann segist bundinn trúnaði um eignarhaldið. „Jón Þorsteinn tengist þeim ekki," segir hann og bætir við að verðið hafi verið eðlilegt á sínum tíma enda eignir tengdar Íslendingum ekki hátt skrifaðar ytra í kringum hrunið.jonab@frettabladid.is
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira