Þrotabú Milestone riftir veðsetningu á reikningi í Glitni Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 21. desember 2009 11:59
Skiptastjóri þrotabús Milestone hefur rift veðsetningu á bankareikningi félagsins sem var í Glitni. Beðið er eftir skýrslu frá Ernst og Young til að taka afstöðu til frekari riftana. Heildarkröfur í félagið nema tæpum 100 milljörðum króna. Milestone var tekið til gjaldþrotaskipta í september síðastliðnum. Kröfuhafar höfðu þá hafnað nauðasamningi sem gerði ráð fyrir því að þeir fengju 6% upp í kröfur sínar. Heildarkröfur í félagið nema tæpum eitthundrað milljörðum króna. Allar eignir þrotabúsins eru í sölumeðferð auk þess sem allir stærstu gjörningar félagsins eru til skoðunar, þar með talið salan á Sjóvá, Askar Capital og Avent til sænska dótturfélagsins Moderna. Undanfarið hefur Ernst og Young unnið að skýrslu um félagið en hún liggur ekki fyrir enn. Stóð til að búið yrði að taka afstöðu til krafna í dag en skiptafundur var haldinn nú fyrir hádegi. Það náðist hins vegar ekki þar sem enn er beðið eftir umræddri skýrslu. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur skiptastjóri beitt riftun í einu tilviki. Milestone var með milljarða króna lán í Glitni sem var tekið fyrir um þremur árum. Á árinu 2008 veitti Milestone bankanum tryggingu fyrir láninu með veði í innstæðum upp á 300 milljónir króna. Þessari tryggingu var rift rétt áður en kröfulýsingarfrestur rann út í Glitni í lok nóvember og gerði þrotabúið þá um 300 milljóna króna kröfu í bankann.
Mest lesið Veldi auðugustu konu Rússlands sagt riða til falls Viðskipti erlent Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Viðskipti innlent Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Viðskipti innlent Farþegar elska lopapeysur Viðskipti innlent Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Viðskipti innlent Fer frá laxeldi í eldri borgara Viðskipti innlent Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Viðskipti innlent Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Viðskipti innlent Fundu vinningsmiðann eftir tveggja daga leit í rusli Viðskipti erlent Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Dyrum Kattakaffihússins lokað fyrir fullt og allt Varar við snyrtivörum á „gráum markaði“ Farþegar elska lopapeysur Selur gamla fyrirtækinu annað á tæpa þrjá milljarða Áslaug Arna í gervigreindina hjá Fenris Creations Jónsbók ræður lögmenn frá þremur mismunandi löndum Fer frá laxeldi í eldri borgara Farþegum fækkaði milli ára Matthildur María tekur við af Rikku við Hringborð norðurslóða Elín Helga yfirgefur Hvíta húsið Von á hóflegum hagvexti næstu árin Ingibjörg og Tómas taka við af Þórunni hjá Úrval Útsýn Rikka hætt hjá Ólafi Ragnari Eykur strandveiðikvótann um 964 tonn Þórunn stígur til hliðar hjá Úrvali Útsýn Gistinóttum á hótelum fækkaði milli ára Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Sjá meira