Moody´s: Matið á Íslandi hækkar ekki um fyrirsjáanlega framtíð 11. nóvember 2009 11:14
Í nýju áliti Moody´s sem fylgir með ákvörðun matsfyrirtækisins um að lækka lánshæfismatið á Íslandi um tvo flokka niður í Baa3 en með stöðugum horfum kemur fram að matið er háð töluverðri óvissu. Þar að auki valdi miklar skuldir hins opinbera því að takmarkað er hve matið getur hækkað um fyrirsjáanlega framtíð. Í álitinu segir Kenneth Orchard aðstoðarforstjóri þjóðahóps Moody´s að stöðugar horfur í nýja matinu byggi á að flókinn pakki stjórnvaldsákvarðana og hóflegur bati í efnahagskerfi landsins 2011 gangi eftir. „Miklar breytingar á frammistöðunni í efnahags- og fjármálum frá því sem nú er spáð mun hafa áhrif á einkunnargjöf Moody´s," segir Orchard. „Efnahagskerfið hefur staðið sig betur en vænst var og það lítur út fyrir að kreppan muni verða grynnri og styttri en áður var talið." Fram kemur í álitinu að frekari bati í efnahagsmálum landsins sé háður nýjum fjárfestingum í útflutningsgeira landsins þar sem eftirspurn innanlands mun verða veik í nokkur ár. Moody´s tekur fram að fjárhagslegur styrkur stjórnvalda hafi veikst verulega á undanförnu ári m.a. vegna þess að fjárlagahallinn hefur blásið út. Brúttóskuldir hins opinbera munu að mati Moody´s ná hámarki í tæplega 150% af landsframleiðslu á næsta ári. Nettóskuldirnar muni nema um 100% af landsframleiðslunni. "Þetta háa skuldahlutfall mun takmarka möguleikana á að lánshæfismatið á Íslandi hækki um fyrirsjáanlega framtíð," segir Orchard. Fram kemur að vaxtagreiðslur muni nema 20% af tekjum ríkissjóðs á næsta ári en minnka svo niður í um 15% árið 2012. Moody´s hefur áhyggjur af miklum skuldum hins opinbera á Íslandi. Ef ekki finnst lausn á því máli í gegnum einkageirann munu skuldirnar auka mjög þrýstingin á fjármál hins opinbera.
Mest lesið Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Viðskipti innlent Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Nathan Viðskipti innlent Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp Viðskipti erlent Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Viðskipti innlent Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Viðskipti innlent Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Viðskipti innlent „Krakkarnir spyrja langmest“ – íslenskar fjölskyldur flykkjast á Lava Show Samstarf Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Viðskipti innlent Icelandair grunar flugmenn um græsku Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Daníel ráðinn forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar Meirihluti launafólks með regluleg laun undir meðaltali Spá 0,25 prósentustiga hækkun stýrivaxta Fyrsti ársfjórðungur hafi verið góður í rekstri Kviku banka Úr Símanum í rörin Spá 4,9 prósenta verðbólgu í maí Telur forstjórann reyna að fara fram hjá stéttarfélaginu „Ekki einhverjir krúttlegir krakkar að leika sér í tölvum“ Yfirlýsing Icelandair kom flatt upp á flugmenn Icelandair grunar flugmenn um græsku Hæstiréttur tekur mál Kvikutoppanna ekki fyrir Bakkavararbróðir kaupir í Kviku fyrir milljarða Gengi Alvotech tekur kipp Alvotech stóðst úttekt FDA Sláandi hve mikið skattarnir hafi hækkað Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Sjá meira