Segja allar upplýsingar um Sjóð 9 hafa verið aðgengilegar Jón Hákon Halldórsson skrifar 11. nóvember 2009 22:14 Glitnir. Mynd/ Valgarður.
Stjórnendur Íslandssjóða, sem áður kölluðu sig Glitnissjóði, fullyrða að fjárfestingar og eignasafn Sjóðs 9 hafi verið í samræmi við fjárfestingarheimildir eins og lög og reglur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða geri ráð fyrir. Þetta kemur fram í orðsendingu sem stjórnendur sjóðsins hafa sent Vísi vegna fréttar af fyrirhugaðri málshöfðun gegn Íslandssjóðum vegna taps sem sjóðsfélagar í Sjóði 9 urðu fyrir þegar sjóðunum var slitið. Einar Hugi Bjarnason lögmaður segir að málsóknin sé meðal annars reist á því að fjárfestingar og eignasafn sjóðanna hafi ekki verið í samræmi við þá stefnu bankans að 20% af heildareignum sjóðsins ætti að vera í formi ríkisskuldabréfa. Stjórnendur Íslandssjóða vísa hins vegar til fréttatilkynningar frá Fjármálaeftirlitinu þann 2. október í fyrra þar sem segir að fjárfestingar og eignasafn Sjóðs 9 hafi verið í samræmi við reglur sjóðsins og ákvæði um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Þá hafna stjórnendur Íslandssjóða því að markaðsefni hafi verið verulega ámælisvert. Allar upplýsingar hafi verið aðgengilegar, hvort sem um ræði útboðslýsinguna eða útdráttur útboðslýsingar þar sem áhættuþættir hafi verið tilteknir. Upplýsingablað sjóðsins hafi verið uppfært mánaðarlega, auk þess sem eignir hafi verið tilgreindar í 6 mánaða og 12 mánaða uppgjöri sjóðsins sem ávallt hafi verið birt í Kauphöll. Á þann hátt hafi rekstrarfélag sjóðsins verið í fararbroddi í upplýsingagjöf meðal rekstrarfélaga verðbréfasjóða. Jafnframt taka stjórnendur Íslandssjóða það fram að uppgjör, slit og útgreiðsla sjóðsins hafi verið undir eftirliti endurskoðanda.
Tengdar fréttir Stefna Glitnissjóðum vegna Sjóðs 9 Hópur hlutdeildarskírteinishafa í peningamarkaðssjóðnum Sjóður 9 sem starfræktur var á vegum Glitnis hyggst stefna sjóðnum. „Útgreiðsluhlutfallið úr Sjóði 9 var 85,12% miðað við síðasta skráða gengi sjóðsins þann 6. október í fyrra,“ segir Einar Hugi Bjarnason, lögmaður hjá Ergó lögmönnum, sem undirbýr málsóknina. 11. nóvember 2009 17:13 Mest lesið Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Sjá meira
Stefna Glitnissjóðum vegna Sjóðs 9 Hópur hlutdeildarskírteinishafa í peningamarkaðssjóðnum Sjóður 9 sem starfræktur var á vegum Glitnis hyggst stefna sjóðnum. „Útgreiðsluhlutfallið úr Sjóði 9 var 85,12% miðað við síðasta skráða gengi sjóðsins þann 6. október í fyrra,“ segir Einar Hugi Bjarnason, lögmaður hjá Ergó lögmönnum, sem undirbýr málsóknina. 11. nóvember 2009 17:13