Viðskipti innlent

Yfir 111 milljarða viðsnúningur á vöruskiptunum í ár

Í júlímánuði voru fluttar út vörur fyrir 41,7 milljarða króna og inn fyrir tæpa 34,9 milljarða króna. Vöruskiptin í júlí voru því hagstæð um 6,8 milljarða króna. Í júlí 2008 voru vöruskiptin óhagstæð um 33,3 milljarða króna á sama gengi.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagfstofunnar. Fyrstu sjö mánuðina 2009 voru fluttar út vörur fyrir 253,5 milljarða króna en inn fyrir 213,7 milljarða króna. Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd sem nam 39,8 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 71,3 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 111,1 milljarði króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.

Fyrstu sjö mánuði ársins 2009 var verðmæti vöruútflutnings 101,8 milljörðum eða 28,7% minna á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 44,7% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 13,8% minna en á sama tíma árið áður.

Útfluttar iðnaðarvörur voru 48,9% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 30,3% minna en á sama tíma árið áður. Mestur samdráttur varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls, en einnig var samdráttur í útflutningi á skipum og flugvélum og á sjávarafurðum.



Fyrstu sjö mánuði ársins 2009 var verðmæti vöruinnflutnings 212,9 milljörðum eða 49,9% minna á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Samdráttur varð í innflutningi nær allra liða innflutnings, mest í hrá- og rekstrarvöru, flutningatækjum og fjárfestingavöru.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×