Segir krónuna hafa náð tímabundnu jafnvægi 28. júlí 2009 12:08
Krónan virðist nú hafa náð tímabundnu jafnvægi á stað þar sem verðgildi hennar er afar lágt sögulega séð. Raungengi krónunnar hefur aldrei verið jafnt lágt og nú og ljóst er að fyrir efnahag fyrirtækja og heimila í landinu þá eru þetta ekki ákjósanlegur staður fyrir krónuna. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að þetta sé heldur ekki ásættanlegur staður fyrir stjórnvöld, Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og Seðlabankann sem sett hafa ekki bara stöðugleika krónunnar á oddinn heldur einnig styrkingu hennar. Eftir alllanga veikingarhrinu hafa litlar breytingar orðið á gengi krónunnar síðan í annarri viku júnímánaðar. Evran hefur á þessum tíma verið á bilinu frá 177-181 krónu og dollarinn frá 125-129 krónu. Gengisvísitalan hefur verið á bilinu 230-234 allan júlímánuð og hefur flöktið í henni verið mun minna en fyrr á árinu. Það hefur því aukinn stöðugleiki skapast í krónunni undanfarið. Stöðugleikinn er vegna afar lítilla viðskipta á gjaldeyrismarkaðinum. Veltan á millibankamarkaðinum með gjaldeyri hefur verið rétt tæplega 240 m.kr. á dag frá því í byrjun júní. Seðlabankinn var með inngripum sínum á gjaldeyrismarkaði með um 40% af veltunni á þeim markaði í júní og hefur bankinn áfram beitt inngripum núna í júlí. Hefur það haft sitt að segja með að skapa umræddan stöðugleika krónunnar en því til viðbótar eru gjaldeyrishöftin, umtalsverður afgangur af vöru- og þjónustujöfnuði við útlönd og talsverður munur á innlendum og erlendum vöxtum að hjálpa til við að hindra krónuna frá frekari lækkun. Á aflandsmarkaði hefur krónan hins vegar sveiflast aðeins meira en á innlendum markaði og hefur evran kostað á bilinu 210 krónur til 230 krónur á þeim markaði síðan í upphafi júní síðastliðnum. Síðustu viðskipti voru þar með evruna á 220 krónum. Viðskipti á þeim markaði eru lítil og strjál.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Sjá meira