Mesta lækkun íbúðaverðs milli mánaða síðan 1994 17. apríl 2009 11:48
Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 3,8% milli febrúar og mars samkvæmt upplýsingum sem Fasteignaskrá Íslands hefur birt. Þetta er mesta lækkun á milli mánaða sem orðið hefur á vísitölu húsnæðisverðs á höfuðborgarsvæðinu síðan byrjað var að reikna vísitöluna árið 1994. Greining Íslandsbanka fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að húsnæðisverð hefur nú lækkað samfellt undanfarna átta mánuði um samtals 8,1%. Frá því að húsnæðisverð á höfuðborgarsvæðinu náði toppi haustið 2007 hefur það lækkað um 10% að nafnvirði og 28% að raunvirði. Greiningin segir að í ljósi þeirra efnahagsaðstæðna sem nú ríkja í hagkerfinu kemur það ekki á óvart að húsnæðisverð sé nú farið að gefa verulega eftir. Í fyrsta lagi er hagkerfið að koma út úr uppsveiflu sem var að hluta til drifin áfram að miklum verðhækkunum á íbúðaverði. Á þriggja ára tímabili frá 2004 til 2007 hækkaði íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu um 70% að nafnverði. Að hluta var hér um verðbólu að ræða sem var byggð á óraunhæfum væntingum og átti sér þannig engar efnahagslegar stoðir. Í öðru lagi hefur hin mikla uppsveifla undanfarinna ára á íbúðamarkaði orðið til þess að nú þegar frost er á þessum markaði situr eftir mikill fjöldi nýrra óseldra íbúða á framboðshlið markaðarins og skapa þrýsting til verðlækkunar. Í þriðja lagi hefur eftirspurnarhliðin á íbúðamarkaði tekið miklum breytingum undanfarið en kaupmáttur launa hefur dregist hratt saman undanfarið með hratt vaxandi atvinnuleysi, aukinni verðbólgu og lækkun gengis krónunnar svo eitthvað sé nefnt. Væntingar um frekari verðlækkun húsnæðis dregur úr spurn eftir íbúðarhúsnæði og sérstaklega eftir stærri eignum.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira