Yfirlýsing um yfirtökutilboðið í Exista 17. apríl 2009 11:03
Vegna fréttaflutnings á Stöð 2/Bylgjunni og á vísir.is í gær, fimmtudaginn 16. apríl, um tilboð BBR ehf. í hluti í Exista hf. óskar BBR eftir að eftirfarandi komi fram á Stöð 2/Bylgjunni og á vísir.is: „Frétt á Stöð 2 og á visir.is um að yfirtökutilboð BBR í Exista sé í einhvers konar uppnámi er á misskilningi byggð. Yfirtökutilboðið er til komið vegna lögboðinnar skyldu BBR til þess að bjóða í hluti annarra hluthafa Exista, í kjölfar þess að eignarhlutur BBR fór yfir 40% í Exista. Öðrum hluthöfum er algerlega í sjálfsvald sett hvort þeir taki yfirtökutilboðinu eða virði það að vettugi. Verðið í yfirtökutilboðinu er hið sama og BBR greiddi fyrir hluti í Exista í desember síðastliðnum. Með tilboðinu er hluthöfum gefinn kostur á því að velja hvort þeir selji bréf sín eða kjósi að vera áfram hluthafar í Exista og mun BBR hvorki hvetja né letja aðra hluthafa til þess að taka tilboðinu." Athugasemd frá ritstjórn Í ljósi þess að Nýi Kaupþing ræður yfir rétt rúmlega 10% hlut í Exista og getur með því að afþakka tilboðið komið í veg fyrir yfirtökuna er með réttu hægt að segja að yfirtakan sé í uppnámi. Forsvarsmenn Nýja Kaupþings hafa ekki ákveðið hvort þeir gangi að tilboðinu. Á meðan sú óvissa ríkir er yfirtakan í uppnámi eins og fram kom í fréttinni.
Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Allir Bónus vanilludropar innkallaðir Neytendur Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira