Keflavíkurflugvöllur er þriðja besta flughöfn Evrópu 4. maí 2009 14:52
Keflavíkurflugvöllur var valinn þriðji besta flughöfn í Evrópu á fyrsta ársfjórðungi þessa árs en hann var í fjórða sæti fyrir allt árið í fyrra, fast á hæla Porto-flugvallar í Portúgal, Southampton í Englandi og Zurich í Sviss sem var í fyrsta sæti. Í tilkynningu segir að þjónusta við farþega á Keflavíkurflugvelli er framúrskarandi að mati farþega. Alþjóðasamtök flugvallarekenda, Airports Council International standa fyrir ítarlegustu þjónustukönnun flugfarþega á helstu flugvöllum heims og var Þjónustukönnun ACI stendur stöðugt yfir á 127 flugvöllum um allan heim. Farþegar svara spurningum um gæði rúmlega 30 þjónustuþátta og niðurstöður eru birtar ársfjórðungslega og heildarárangur árlega. „Við erum mjög ánægð með þessar niðurstöður. Keflavíkurflugvöllur er í fremstu röð og þjónustan stenst samanburð við það besta sem gerist. Flugstöðin er rúmgóð og þægileg og farþegar hafa ríka öryggistilfinningu. Starfsmenn eiga heiður skilinn fyrir þennan frábæra árangur sem er til mikillar hjálpar í markaðsstarfi okkar. Við horfum björtum augum til framtíðar með bættum efnahag og aukinni ferðamennsku", segir Björn Óli Hauksson forstjóri Keflavíkurflugvallar ohf. Eigið fé Keflavíkurflugvallar ohf. er 6.382 milljónir króna samkvæmt ákvörðun framhaldsstofnfundar félagsins sem haldinn var föstudaginn 24. apríl. Skuldir eru samtals 22,5 milljarðar og skuldir og eigið fé því samtals 28,9 milljarðar króna. Ríkisendurskoðun hefur tekið saman sérfræðiskýrslu vegna stofnefnahagsreiknings Keflavíkurflugvallar ohf. og kemur þar fram að eigið fé félagsins svari til þeirra verðmæta sem ríkissjóður leggur félaginu til. Eigið fé er annars vegar hlutafé að upphæð fjórir milljarðar króna og hins vegar lögbundinn varasjóður sem er tæpir 2,4 milljarðar króna. Helstu eignir sem félaginu eru lagðar til eru frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar ohf., Flugmálastjórn Keflavíkurflugvallar, ýmsar fasteignir í eigu ríkisins og síðan afnotaréttur flugbrauta og fasteigna sem voru í umsjá Varnarmálastofnunar. Keflavíkurflugvöllur ohf. hefur hafið undirbúning fyrir sumarið. Félagið hefur endurráðið 20 flugverndarstarfsmenn í fullt starf sem verið hafa í hálfu starfi undanfarna þrjá mánuði sökum verkefnaskorts. Einnig er verið að ráða starfsmenn til sumarafleysinga en þeir verða þó færri en undanfarin ár þar sem útlit er fyrir 20% samdrátt í farþegafjölda í sumar miðað við árið 2008.
Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Sjá meira